Forvarnir hefjast heima II

Góð tengsl.

Af hverju byrjar ungt fólk að nota áfengi eða fíkniefni ?

 

,,Mér leið illa í skólanum , varð fyrir einelti og kveið fyrir hverjum degi“.

„Mér varð bara rétt pípa í partýi og ég bara prufaði“  

„Mér var sagt að hass hefði róandi áhrif á mann‘‘

,, Fannst það ,,cool” Vildi bara vera eins og eldri krakkar”

,,Veit það ekki ,vildi vera með , var í hópi með eldri krökkum og , ætli það hafi ekki bara verið einhver þrýstingur”

,,það var svo töff “

Þetta eru svör nokkurra unglinga sem voru í meðferð til þess að hætta neyslu á vímuefnum.Víst er að sú barátta verður löng og erfið og skilur eftir sig ör alla ævi.   Öll neyttu þau fíkniefna í fyrsta skipti í heimahúsi hjá ,,kunningja” og stóðu venjulega  frammi fyrir því að þurfa að taka ákvörðun um það fyrirvaralaust um hvort þau ætluðu að prófa.  Öll féllu þau á þessu prófi.  Þau áttu það öll sameiginlegt að þau eyddu litlum tíma með foreldrum sínum á unglingsárunum......

Að vera í góðum tengslum við barnið er eitt það mikilvægasta sem foreldrar geta lagt af mörkum til að hjálpa barninu sínu að forðast neyslu á áfengi og fíkniefnum..

Leitaðu aðstoðar ef grunsemdir vakna, það er styrkur , ekki veikleiki

Previous
Previous

Vinátta

Next
Next

Forvarnir hefjast heima