Ársskýrsla 2023

Nýtt ár lagðist vel í okkur og starfið fór vel af stað á árinu 2023. Fyrsta Verkefni ársins í Tónasmiðjunni var „HETJUR“ – ROKKUM fyrir langveik born og styrkja þar með Umhyggju félag langveikra barna. Þátttakendur voru um 40 einstaklingar, flottur hópur á ýmsum aldri ásamt heiðursgestum Heiðursgestir að þessu sinni voru söngvararnir Íris Hólm og Siggi Ingimars .  Þessir tónleikar voru virkilega FLOTTIR , góð mæting og styrktum við Umhyggju um 400 þúsund krónur. (Í kringum þetta verkefni seldum við auk þess merkta boli.)

Það er orðin fastur liður í Tónasmiðjunni að sjá um árlega poppmessu sem er tengt Æskulýðsdegi kirkjunnar og var það virkilega flott stund.  

Sumarið kom og áfram var haldið og við byrjuðum að undirbúa okkur fyrir næstu sýningu og verkefni því tengt , hent var í húfusölu í tengslum við verkefnið og fór verkefnið „Aðeins eitt LÍF“ af stað til styrktar Píeta samtökunum á Akureyri í tengslum við 10. september sem er alþjóðlegur sjálfsvígs forvarnadagur og er þetta sjötta árið sem við erum með verkefni tengt þeim degi. Um 40 manns tóku þátt í þessari sýningu þar á meðal heiðursgesturinn Pálmi Gunnarsson. Verkefnið gekk vel, full kirkja og styrktum við Píeta samtökin á Akureyri um 200 þúsund krónur sem var ágóði af tónleikunum. En þar með höfum við styrkt Píeta núna samtals um eina milljón króna s.l. þrjár sýningar tengt 10. Sept og munum við halda því áfram.  

Auk þess að vera að æfa og undirbúa þessa sýningu sumarið ´23 spiluðum við í skrúðgöngunni á 17. Júní og seinna þann dag héldum við tónleika úti við vegamótatorg. Á mærudögum héldum við FLOTTA tónleika á aðalsviði hátíðarinnar þar sem FLOTTUR hópur frá okkur kom fram um kvöldið og fékk mikið hrós fyrir. 

Eftir sumarið var ráðist í næsta verkefni sem var jólasýningin okkar “Jólin þín og mín” sem var núna haldin í fimmta skiptið og orðin fastur punktur í aðventuhaldi samfélagsins. Hópurinn stækkaði töluvert og núna vorum saman komin um 70 þátttakendur á ýmsum aldri , fjölbreyttur hópur krakkar og eldri reynsluboltar. Ákveðið var að prófa að færa tónleikana úr kirkjunni og setja þá upp í íþróttahöllinni. Æft var stíft , og var mikill undirbúningur, enda krefjandi verkefni og stefnan sett á að toppa okkur einu sinni enn og halda  GLÆSILEGUSTU sýninguna okkar. Heiðursgestir að þessu sinni var verndari starfsins okkar hún Hrafnhildur Ýr söngkona og reynsluboltinn Eyjólfur Kristjánsson. Auk þeirra voru sérstakir gestir magnaður hópur frá STEPS dancecenter frá Akureyri og Kirkjukór Húsavíkur. Þakklæti var okkur efst í huga til allra sem koma að þessu með okkur þegar við gengum frá þessu verkefni. Æðisleg stemmning, ásamt frábærum tónleikagestum. Yndisleg stund sem gaf okkur mikiđ. Þetta verkefni okkar var æðislegt en um leiđ krefjandi ferđalag, sem náði hápunkti sínum með þessum FLOTTU tónleikum, mikiđ skipulag og margar æfingar sem skilađi sèr svo sannarlega. Í ár eins og undanfarin ár styrktum við Velferđarsjòđ Þingeyinga, en alls safnađist 750 þùsund krònur í kringum jólasýninguna.

Á þessu ári 2023 höfum við styrkt þrjú góð málefni um samtals 1 milljón og 350 þúsund krónur.

Auk þess í Desember skemmtum við á Jólafundi Kiwanis og á þorláksmessukvöld komum við svo fram í versluninni Heimamenn.

Við erum afar stolt af að vera að stýra Tònasmiđjunni núna sjöunda árið á Húsavík og hefur starf okkar stöðugt verið að stækka,  þar sem við komum saman einstaklingum á öllum aldri, gerum eitthvađ skemmtilegt saman međ jákvætt forvarnargildi og gefum af okkur þannig til samfélagsins og til góðra málefna.  Núna í desember gáfum við auk þess jólagjafir til heldra fólksins okkar í Hvammi og Skógarbrekku eins og við höfum gert undanfarin 5 ár.       

Heimasíðan og hlaðvarpstöðin gengu vel á þessu ári.  Greinilegt að fólk er að lesa og hlusta vel á það efni sem er þar inni og gott að fólk er að nýta sér þessi verkfæri og munum við uppfæra það betur á komandi ári.

Viđ erum núna þegar byrjuđ ađ leggja drög ađ næsta verkefni sem byrjar hjá okkur núna í Janùar og verður ROKKsýning ì maì. Endilega fylgist með..

Um leið og við óskum ykkur öllum velfarnaðar á nýju ári 2024 viljum við þakka öllum þeim sem hafa sýnt okkur áhuga , hvatt okkur áfram, styrkt okkur og/eða rétt okkur hjálparhönd með einum eða öðrum hætti. 

Án ykkar væri þetta ekki hægt.

TAKK fyrir okkur!!!