Kvíði

Kvíði og ótti eru hluti eðlilegs tilfinningalífs,  líkt og gleði eða reiði. Megin tilgangur með einkennum þessum er að vekja athygli á hugsanlegum hættum og búa einstaklinginn bæði andlega og líkamlega undir að bregðast við þeim. Fyrr á tímum, þegar maðurinn bjó við frumstæð skilyrði, fólst slíkur undirbúningur aðallega í því að gera hann hæfari til átaka t.d. í stríði eða verjast hættulegum dýrum. Viðbrögðin voru m.a. fólgin í því að blóðrás í vöðvum örvaðist en minnkaði í innyflum og húð. Vöðvar urðu spenntir ekki síst í útlimum, maðurinn varð sterkari og skjótari í hreyfingum og athyglin skerptist. Nú á tímum er glímt við allt önnur verkefni svo sem aðlögun að síbreytilegu samfélagi, fjölskyldulífi, samkeppni í starfi, o.s.frv. Þrátt fyrir þetta eru andleg og líkamleg viðbrögð við eðlilegum kvíða, sterkum jafnt sem vægum, nánast óbreytt. Óeðlilegur og sjúklegur kvíði eða ótti hafa hins vegar engan tilgang, en eru afleiðing andlegrar eða líkamlegrar truflunar. Eðlilegur, óeðlilegur og sjúklegur kvíði eða ótti eru óþægilegar tilfinningar og leiða oft til mikils sársauka. Þess vegna kvíða margir fyrir eða óttast fátt meira en kvíðann.

hér er ætlað að auka þekkingu og skilning fólks á kvíða og ótta. Bæði er auðveldara að glíma við það sem maður kann betur skil á og að geta aðstoðað þá sem haldnir eru þessum einkennum. Með kvíða er hér átt við þau einkenni, bæði andleg og líkamleg, sem fylgja honum. Með ótta er hér átt við hræðslu við eitthvað sem stundum er óljóst.

Kvíði

Allir hafa fundið til kvíða að vísu í misjafnlega miklum mæli. Oft virðist svo sem mat á andlegum styrk og getu sé m.a. fólgið í því að ráða við kvíða og ótta. Þess vegna freista margir þess hver í sínu horni að glíma við kvíðann. Rétt er að þáttur þess sem líður af kvíða skiptir sköpum um árangur en mörgum reynist erfitt að viðurkenna takmörk sín og leita eftir aðstoð. Fjöldi þeirra er líða af kvíða leita því ekki eftir viðeigandi úrlausn, oftast vegna blyggðunnar , óvissu um árangur eða skorts á vitneskju um úrræði. Slíkt veldur bæði óþarfa vanlíðan og eykur hættu á ýmsum andlegum og líkamlegum sjúkdómum svo sem þunglyndi og vöðvabólgu. Rannsóknir sýna að um 45% alls fólks í öllum stéttum líða af alvarlegum kvíða einhvern tíma um ævina. Rannsóknir sýna einnig að á hverju ári líða um 12% eða um 31.200 Íslendingar af óeðlilegum eða sjúklegum kvíða. Kannanir gefa í skyn að aðeins um 4.000 þeirra leiti eftir meðferð, mun fleiri konur eða tvær konur á móti hverjum karli.

Einkenni kvíða

Styrkleiki kvíðans getur verið misjafn allt frá vægum kvíða og áhyggjum, til ofsakvíða eða kvíðakasts.

Upphaf kvíðans getur verið snöggt eða komið á nokkrum sekúndum eða hægar á nokkrum mínútum, klukkustundum eða jafnvel dögum.

Lengd kvíðans getur varað frá nokkrum sekúndum upp í daga, mánuði, jafnvel ár. Ofsakvíði eða kvíðakast varir þó sjaldan lengur en 10 mínútur og yfirleitt ekki lengur en 30 mínútur.

Tilefni kvíðans eru stundum óljós eða jafnvel engin og er hann þá kallaður sjálfsprottinn kvíði. Þegar hins vegar kvíðinn orsakast af ýmsum atvikum eða kringumstæðum er talað um ástæðusprottinn kvíða. Stundum eru tilefni kvíðans sprottin af hugsun er beinist að einhverju óþægilegu og kallast hann þá hugsprottinn kvíði.

Megineinkenni kvíðans eru bæði andleg og líkamleg.

Helstu andlegu einkennin eru:
Svefntruflanir, áhyggjur, óþolinmæði, viðkvæmni, bræði, einbeitingarskortur, dauðaangist, ótti við að ruglast, óraunveruleikakennd, eirðarleysi.

Helstu líkamlegu einkennin eru:

Hjarsláttarköst, andþyngsli, verkir í brjóstholi, dofi á höndum og fótum, vöðvaverkir, þreyta, svimi, ógleði, sviti, kaldar og rakar hendur, munnþurrkur, kökkur í hálsi, spenntur magi, niðurgangur, uppköst, tíð þvaglát.

Einkennin eru mismörg og misjöfn hverju sinni, mildust í vægri kvíðni og verst í kvíðaköstum (sjá síðar).

Svörun kvíðans er margvísleg. Stundum myndast fælni við þær kringumstæður sem leiða til ástæðusprottins kvíða. Stundum myndast þunglyndi. Stundum koma fram ýmis konar önnur andleg einkenni s.s. þráhyggja. Stundum er gripið til örþrifaráða s.s. neyslu víns, eða annarra vímuefna. 

Flokkun á kvíða

Í vissum tilfellum orsakast kvíði af ýmsum líkamlegum sjúkdómum t.d. heilaskemmdum, alvarlegum hjartasjúkdómum eða skjaldkirtilssjúkdómum of/vanvöxtur) og stundum af ýmsum andlegum sjúkdómum t.d. þunglyndi. Hafa ber þó í huga að oft leiðir sár og langvinnur kvíði til þunglyndis. Slíkt þunglyndi er oftast á ýmsan hátt ólíkt öðrum tegundum þunglyndis. Ýmis efni svo sem alkóhól, kaffi og sum lyf, jafnvel kvíðastillandi lyf geta aukið á kvíðann. Því er nauðsynlegt að kanna almennt heilsufar og líferni hvers sjúklings sem líður af kvíða áður en greining fer fram og meðferð hefst.

Þegar ekki finnast líkamlegar eða sérstakar geðrænar orsakir kvíðans er honum venjulega skipt í þrjá eftirfarandi flokka:

Eðlilegur kvíði sem getur verið sár en er ætíð rakinn til viðeigandi orsaka.

Óeðlilegur kvíði sem er oft rakinn til ákveðinna orsaka. Hann er of sár til þess að teljast eðlilegur og of vægur eða fátíður til þess að geta talist sjúklegur samkvæmt alþjóðlegri læknisfræðilegri skilgreiningu.

Sjúklegur kvíði er sár og tíður, breytir hegðun og lífi einstaklingsins en ekki finnast neinar viðeigandi orsakir. Kvíðinn getur verið bundinn við sérstakar kringumstæður. Sjúklegum kvíða er skipt í annars vegar kvíðni og kvíðaköst og hins vegar ýmsar tegundir fælni (sjá síðar).

Stundum eru mörkin óljós milli eðlilegs, óeðlilegs og sjúklegs kvíða.

Eðlilegur kvíði

Eðlilegur kvíði getur verið missár annars vegar vegna viðkvæmni einstaklingsins og hins vegar vegna sársauka þeirra ástæðna er voru orsök kvíðans. Almennt varir hann stutt, oftast skemur en nokkra daga, og hefur mjög sjaldan áhrif á hegðun eða líf einstaklinga.

Óeðlilegur kvíði

Óeðlilegur kvíði orsakast oft af fremur vægum tilefnum, er fremur sár, stundum mjög sár, en varir yfirleitt stutt eða skemur en mánuð og hefur almennt nokkur áhrif á líf einstaklingsins. Oftast er hér um viðkvæma einstaklinga að ræða.

Sjúklegur kvíði

Kvíðni kallast það þegar einstaklingur líður í minnst nokkra mánuði af oft stöðugum en mismiklum og ástæðulausum kvíða eða óviðráðanlegum, stöðugum og tilefnislausum áhyggjum t.d. í sambandi við fjölskyldumeðlimi, peninga, starf o.fl. Einnig ber á ýmsum öðrum bæði andlegum og líkamlegum megineinkennum kvíðans eftir því hversu kvíðnin er alvarleg. Einstaklingar með sjúkdóm þennan óttast almennt ekki kvíðann heldur þjást af honum en þeir óttast oft ýmis konar líkamleg einkenni hans. Engin lausn fæst með því að forðast vissar kringumstæður. Kvíðinn eltir þá hvert sem þeir fara. Hann verður sárari ef einstaklingur mætir nýju álagi. Stundum tekst þeim að leyna svo þessum einkennum að aðrir verða þeirra ekki varir.

Rannsóknir sýna að milli 3-5% eða um 10.000 Íslendingar líða af þessum sjúkdómi ár hvert. Hann getur byrjað hjá fólki á öllum aldri, þó mun oftar hjá konum en körlum. Yfirleitt er mjög seint eða aldrei leitað eftir meðferð við kvíðanum fremur eftir úrlausnum á líkamlegum fylgikvillum hans.

Kvíðaköst kallast það þegar einstaklingur fær skyndilega og óvænt án nokkurrar sérstakrar ástæðu minnst fjórum sinnum á mánuði ofsakvíða eða kvíða á hæsta stigi. Mun oftar fá einstaklingar eitt eða nokkur kvíðaköst um ævina og telst það ekki til sjúkdómsins heldur til óeðlilegs kvíða. Strax eftir fyrsta kvíðakastið getur myndast sterkur ótti við að fá annað kast. Því er oft leitað eftir öryggi gegn öðru kasti með því að forðast kringumstæður er tengjast kastinu. Slík viðbrögð geta svo leitt til fælni t.d. víðáttufælni. Um 1/3 þeirra er líða af kvíðaköstum líða einnig af víðáttufælni.

Almennt er ekki hægt að sjá fyrir hvort eða hvenær kvíðakast kemur aftur. Í einstaka tilfellum finnast breytingar er gefa til kynna að nýtt kvíðakast gæti verið í aðsigi t.d. aukin spenna, hjartsláttarköst, andfælni o. fl. Einkenni kvíðakasta eru dálítið breytileg eftir einstaklingum. Helst ber á ótta við að deyja. Aukinn hjartsláttur, verkir eða þrýstingur fyrir brjósti og oföndun styrkja þennan grun sjúklings og magna kvíðann. Einnig ber á ótta við að sturlast eða gera eitthvað hræðilegt. Óraunveruleikakennd, jafnvel rof á raunveruleikatengslum, styrkja ótta þennan. Oftast byrja einkennin á aldrinum 15-20 ára eða á aldrinum 25-29 ára. Kvíðakast eftir fertugsaldur bendir til þunglyndis eða líkamlegs sjúkdóms. Allt að 33% einstaklinga geta fengið eitt eða tvö kvíðaköst um ævina. Um 1%, eða tæplega 2.600 Íslendingar, líða af kvíðaköstum árlega. Þau eru aðeins algengari meðal kvenna.

Orsakir sjúklegs kvíða

Líklegt er talið að margvíslegar orsakir valdi sjúklegum kvíða eða ótta. Andlegt eða félagslegt álag orsaka ekki beinlínis sjúklegan kvíða en geta kallað hann fram eða aukið meðal einstaklinga er hafa tilhneigingu til að fá sjúklegan eða óeðlilegan kvíða.

Lífefnafræðilegar truflanir byggjast á eftirfarandi þrem staðreyndum:

viss efni geta framkallað kvíða einkum hjá fólki sem er viðkvæmt fyrir honum

viss lyf eða lyfjaflokkar draga mjög úr eða eyða kvíða

viss ættgengni finnst.

Viss efni svo sem koffein geta framkallað mikinn kvíða jafnvel kvíðaköst hjá fólki með slíka viðkvæmni. Rannsóknir benda til þess að þrír megin boðberar tengjast kvíða en þeir eru:
Noradrenalin sem aðallega er að finna í ákveðnum kjarna í heila (locus ceruleus). Kvíði tengist breytingum á jafnvægi boðbera þessa þannig að aukin áhrif þeirra valda meiri kvíða.
Serotonin sem tengist kvíða á þann hátt að efni er auka áhrif þess geta dregið úr kvíða.

GABA sem verkar þannig að ákveðin lyf sem hafa nær einvörðungu áhrif á GABA aukaverkun þess og verka best gegn kvíða. Fundist hafa svipuð efni er líkaminn framleiðir sjálfur til þess að vinna gegn kvíðanum.

Erfðafræðirannsóknir hafa sýnt vissa ættgengni meðal ákveðinna sjúkdómsgreininga kvíðans svo sem kvíðakasta og víðáttufælni. Talið er að erfðafræðileg röskun á starfsemi sé aðallega fólgin í því að einstaklingurinn sé næmari fyrir kvíða en ella.

Sálfræðilegar orsakir eru aðallega eftirfarandi:
Sálkönnunarkenning Freuds sem rekur orsakir kvíðans til innri sálarflækja meðal meira eða minna ómeðvitaðra kennda í sálarlífi einstaklingsins.

Atferlisstefnan sem rekur orsakir óttans til þess að einstaklingur lærir að forðast atriði sem valda sársauka en hafi annað hvort ofmetið óþægindin eða vanmetið sína eigin getu og nær því ekki stjórn á kvíðanum.

Sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir

Ekki liggja fyrir neinar nákvæmar rannsóknir á því á hvern hátt og hversu mikið kvíði hefur áhrif á sjálfsvíg eða sjálfsvígshugsanir. Eitt af aðaleinkennum kvíðakasts er óttinn við að deyja. Vitað er þó um aukna tíðni sjálfsvíga meðal sjúklinga er líða af stjórnlausum kvíða þ.e.a.s. kvíða sem þeir geta ekki umflúið.

Meðferð

Almennt leita þeir einstaklingar sem líða af ýmsum líkamlegum einkennum samfara kvíðanum fyrst til annarra sérfræðinga en geðlækna t.d. til heimilislækna, hjartalækna eða lungnalækna. Meðferð á kvíða byggist í grundvallaratriðum á því annars vegar að draga úr kvíðanum og hins vegar að sjúklingur öðlist meiri andlegan styrk til þess að takast á við kvíðann og afleiðingar hans. Meðferðin er mjög einstaklingsbundin og fer m.a. eftir tegund kvíða, andlegu og líkamlegu ástandi sjúklings, skapgerð, líferni og aðbúnaði.

Helstu tegundir meðferðar eru:

Samtalsmeðferð sem byggist í grundvallaratriðum á stuðningi, upplýsingum um sjúkdóminn og á því að auka vitneskju sjúklings á sjálfum sér, getu sinni og viðbrögðum. Val á frekari meðferð fer eftir ástandi sjúklings hverju sinni. Í sumum tilvikum er rétt að vinna meir úr ýmsum ofannefndra atriða t.d. að sjúklingur kynnist veilum í viðbrögðum sínum og læri ný. Eða hann fái leiðbeiningar um ýmis líkamseinkenni, læri að slaka á og að meðhöndla oföndun. Í þeim tilvikum þegar sjúklingur líður af fælni við öddhvöss járn, hnífa eða svalir, byggist meðferðin nær einvörðungu á stuðningsmeðferð og auknu innsæi í sálarlíf hans. Í öðrum tilvikum er áhersla lögð á kerfisbundna þjálfun í að mæta þeim kringumstæðum sem vekja ótta. Tilgangur með þjálfun þessari er að sjúklingur nái smám saman tökum á ótta sínum og hætti að forðast þær kringumstæður er hann fældist. Í fyrstu þarf hann stundum á fylgdarmanni að halda. Reynslan hefur sýnt að eftir nokkrar slíkar aðgerðir dvín kvíðinn eða hverfur.

Lyfjameðferð er tvenns konar. Annars vegar er hún til þess að leiðrétta andlegar og líkamlegar truflanir sem kunna að eiga þátt í orsökum kvíðans t.d. skjaldkirtilstruflanir eða þunglyndi og hins vegar fólgin í lyfjum er hafa sérstök áhrif á kvíðann sjálfan. Með því að hafa áhrif á boðberana Noradrenalin, Serotonin eða GABA. Verkun þessari má ná með lyfjum úr þrenns konar lyfjaflokkum. Lyfjum gegn þunglyndi, lyfjum gegn öðrum alvarlegum geðsjúkdómum en í mjög vægum skömmtum og róandi eða kvíðastillandi lyfjum. Lyf í hverjum þessara þriggja flokka fyrir sig verka mismunandi vel eftir því um hvaða kvíðasjúkdóm er að ræða hverju sinni og skapgerð einstaklingsins. Sum lyf verka innan nokkurra klukkutíma, önnur innan hálfs mánaðar eða svo. Rétt er að forðast ávanamyndandi lyf og taka þau aðeins skamman tíma hverju sinni vegna hættu á ávanamyndun. Rannsóknir sýna að í meðferð flestra tegunda kvíðasjúkdóma fæst bestur árangur með því að samnýta samtalsmeðferð og lyfjameðferð þ.e.a.s. nýta það sem best á við hverju sinni bæði í samtölum og lyfjameðferð.

Helstu viðbrögð við kvíða

Einstaklingar er fá eðlilegan kvíða af augljósum ástæðum bera sig almennt vel, fá yfirleitt stuðning og hjálp vina. Þeir sem fá óvæntan eða tilefnislausan kvíða bregðast yfirleitt við á eftirfarandi hátt.

Með undrun og hræðslu sem oft eykur á kvíðann.

Beita öllum ráðum til að fyrirbyggja nýjan kvíða.

Leita yfirleitt seint eða aldrei til lækna.

Leyna kvíðanum eins lengi og við verður komist.

Þeir átta sig yfirleitt ekki á eðli kvíðans. Aðstandendur eða nánustu vinir bregðast yfirleitt undrandi við. Tala svo yfirleitt um ástæðulausan kvíða eða benda á einhverja átyllu svo sem þreytu eða líkamleg veikindi. Því vill oft fara svo að hvorki skilur hann né vinirnir hvað í raun er að gerast og hvernig er best að bregðast við.

Leiðbeiningar fyrir aðstandendur eða vini

Nauðsynlegt er að einstaklingur sem þjáist af kvíða fari í viðeigandi meðferð. Mælt er með eftirfarandi:

Hafið í huga að hér er ekki um vesaldóm að ræða heldur óeðlilegt eða sjúklegt ástand er þarfnast viðeigandi úrlausnar.

Leitið upplýsinga um kvíðann og bjóðið fram stuðning.

Hlustið á lýsingar sjúklings á kvíðanum og afleiðingum hans og hvernig hann bregst við þeim.

Reynið að styðja hann við að ná tökum á afleiðingum kvíðans með því að fara með honum á þá staði er hann vill forðast.

Ef þið sýnið óþol eða ótta er hætt við að sjúklingur einangrist.

Hvetjið hann til að rjúfa ekki meðferð heldur fara að ráðum.

Leiðbeiningar fyrir sjúkling með kvíða

Ef þú finnur til þess að þú þjáist af kvíða skaltu leita til læknis og fá upplýsingar um eðli kvíðans, tegund og meðferð. Mundu að þú getur náð tökum á honum.
Mælt er með eftirfarandi:

Ótti við kringumstæður er almennt gefa ekki tilefni til ótta er vísbending um óeðlilegan eða sjúklegan kvíða.

Ef þér finnst að eitthvað alvarlegt gerist ef þú kemst ekki hjá þessum kringumstæðum þá er meðferð nauðsynleg.

Ef þú lendir í slíkum kringumstæðum mundu að kvíðinn minnkar er dvöl þín lengist þar.

Ef þú verður að mæta kringumstæðum sem þú óttast skaltu hafa hugfast að kvíðinn minnkar eða hverfur þegar þú ert kominn á staðinn.

Mundu að vín, önnur vímuefni eða róandi töflur lækna ekki kvíðann heldur geta þau valdið nýjum sjúkdómi.

Berðu ekki kvíða þinn einn heldur deildu honum með öðrum.

Hafði hugfast að reynsla þín af kvíðanum getur orðið öðrum gagnleg.

Vertu þolinmóð(ur), þú færð bata.