ÞÚ skiptir máli / podcast

Æðruleysið - 19. þáttur / Ábyrgð og ákvarðanir

Velkomin í Æðruleysið

Í þessum 19. þætti af Æðruleysinu kemur þáttastjórnandi til baka eftir mjög gott og langt frí, og talar um ábyrgð og ákvarðanir. Hversu mikil áhrif það hefur á okkur og okkar líf, að taka eða ekki taka ákvarðanir og bera ábyrgð á að fylgja þeim eftir.

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Æðruleysið - 18. Þáttur

Velkomin í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs. Í þessum 18. þætti talar Þórdís um þakklæti og nokkrar leiðir til að hafa lífið í jafnvægi.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Æðruleysið - 17. Þáttur

Verið velkomin í Æðruleysið

Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að klára yfirferð yfir bókina Lífsreglurnar 4 eftir Don Miguel Ruiz og tala um viðhorf sjálfra okkar til allra hluta.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Æðruleysið - 16. Þáttur

Verið velkomin í Æðruleysið

Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að halda áfram með okkur í þessu fjögurra vikna ferðalagi þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz og er nú komið að lífsreglu númer fjögur sem er að „Gerðu alltaf þitt besta“ og verður það svo verkefni þessarar viku. - Gangi ykkur vel.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Við erum einstök - 11. Þáttur / Finndu þinn innri styrk

Verið velkomin í þáttinn "Við erum einstök"

Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg R. Þengilsdóttir andlegur ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið.

Í þessum ellefta þætti sem við köllum „Finndu þinn innri styrk“ segir hún Ingibjörg okkur meira frá sjálfri sér, sinni vinnu með fólki og frá þeim andlega styrk sem hún býr yfir til að hjálpa öðrum.

Já... Fjársjóðurinn þinn býr innra með þér. ÞÚ uppskerð eins og þú sáir , leggðu aðeins meira á þig og þú uppskerð enn betur. Nýttu þér styrk þinn alla leið, fyrir þig og til að hjálpa öðrum.

þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir.

Njótið!!

 

Æðruleysið - 15. Þáttur.

Verið velkomin í Æðruleysið

Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna markþjálfi að halda áfram með okkur í þessu fjögurra vikna ferðalagi þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz og er nú komið að lífsreglu númer þrjú sem er að „Ekki draga rangar ályktanir“ og verður það verkefni þessarar viku. - Gangi ykkur vel.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Æðruleysið - 14. Þáttur

Verið velkomin í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að halda áfram með okkur í þessu fjögurra vikna ferðalagi þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz og er nú komið að lífsreglu númer tvö sem er að „Ekki taka neitt persónulega“. Gangi ykkur vel.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Verkfærakassinn 30 - Katrín Ósk og Óskarbrunnur

Verið velkomin í Verkfærassann

Gestur 30. þáttar Verkfærakassans er Katrín Ósk Jóhannsdóttir barnabókahöfundur og eigandi Óskarbrunns.

Katrín deilir með hlustendum reynslu sinni af baráttu fyrir bættri líðan sonar hennar sem glímt hefur við kvíða, vanlíðan og slæma skólaforðun í nokkur ár. Vonleysinu sem fylgdi því að koma sífellt að lokuðum dyrum eða þungum hengilásum og sjálfskoðuninni sem varð grunnur að verkfærinu sem reyndist mikilvæg leið að bættri líðan fyrir þau bæði.

Einlægt og afar hugvekjandi spjall við hugrakka, hæfileikaríka og kraftmikla konu.

þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

Njótið

 

Æðruleysið - 13. Þáttur

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

Í Æðruleysinu í dag ætlar Þórdís Jóna að bjóða okkur í fjögurra vikna ferðalag, þar sem hún fer í gegnum bókina Lífsreglurnar fjórar eftir Don Miguel Ruiz. Og ætlar hún að taka fyrir eina lífsreglu í hverjum þætti næstu fjórar vikurnar.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Verkfærakassinn 29 - Sigga Kling

Verið velkomin í Verkfærassann

Gestur 29. þáttar Verkfærakassans er þjóðardjásnið Sigga Kling.

Það var bjartur vordagur á Álftanesinu þegar Hrabbý heimsótti Siggu og umhverfið iðaði af lífi. Í bakgrunni viðtalsins má því heyra börn og fullorðna að leik, fugla syngja og allskyns farartæki fara um.

Hrabbý og Sigga ræddu lífið og tilveruna, lífshlaup hennar sjálfrar og svo margt, margt fleira. Að taka viðtal við Siggu er eins og að taka þátt í spennandi óvissuferð þar sem þú veist aldrei hvað kemur næst. Það eina sem þú getur verið viss um er að það verður alltaf gaman.

Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

Njótið!

 

Æðruleysið - 12. þáttur

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

Í þessum tólfta þætti talar hún um bata og bataferli. Hún fer yfir það hvað hefur virkað og hversu persónubundið það er hverju sinni.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Við erum einstök - 10. þáttur / Sól og sykur

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök"

Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg R. Þengilsdóttir andlegur ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið.

Þennan tíunda þátt kallar Ingibjörg „Sól og sykur“

Margir eru að finna fyrir þreitu, streitu, áhyggjurnar hlaðast upp og um leið gefast margir upp á sínum markmiðum og rútínan fer í rugl. - Þá er nauðsynlegt að stoppa, kúpla sig út úr amstri daglegs lífs og leifa sér að njóta þess að taka sér frí og hlaða batterýið.

Já, munum að lífið er núna, verum góð við okkur sjálf og njótum þess.

þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir.

Njótið

 

Hjartans mál - 9. þáttur

Verið velkomin í þáttinn Hjartans mál

þar sem mál hjartans fá rými og mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

Í þessum þáttum okkar fræðumst við saman um andlega líðan, lesum hugvekjur hjarta og huga og finnum leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur „Ástríða“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari frá Dáleiðaraskóla Íslands. Ágústa opnaði nýverið stofu í Laugardalnum en hennar sérsvið eru til að mynda stjúptengsl, samskipti/samskiptaörðugleikar, kvíði, ótti við höfnun, að bera skömm, framhjáhalds meðferðir (pör sem eiga þá sögu), djúp sjálfsvinna og fleira.
Við þökkum Ágústu kærlega fyrir.

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

Njótið!!

 

Verkfærakassinn 28 - Lilja Steingríms

Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann

Gestur 28. þáttar Verkfærakassans er Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur, hómópati, leiðsögukona og Bodynamic sálmeðferðarfræðingur. Undir nið þungavinnuvélanna í Vesturbænum segir Lilja hlustendum frá áhugaverðri ævi sinni, frá áskorunum þess að vera klínískur hjúkrunarfræðingur og andleg sál um leið og kynnir fyrir okkur þetta glænýja meðferðarform Bodynamic, en Lilja er eini slíki meðferðaraðilinn hér á Íslandi enn sem komið er.
Áhugavert spjall við afar áhugaverða konu.

Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

Njótið! <3

 

Æðruleysið - 11. þáttur.

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

Í þessum ellefta þætti talar hún Þórdís um sjálfsmildi og það að við sjálf eigum að vera okkar besti vinur. Hún fer yfir málefni tengt því og hvernig við komum fram og tölum við okkur sjálf.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Hjartans mál - 8. þáttur

Verið velkomin í Hjartans mál
þar sem mál hjartans fá rými og mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

Í þessum áttunda þætti fær af Hjartans mál fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Þegar ekki sést til sólar“ rödd, en Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook.
Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir.

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir
Upphafs- og lokastef: Ágúst Þór Benediktsson

Njótið

 

Verkfærakassinn 27 - Ingrid Kuhlman

Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann

Gestur 27. þáttar Verkfærakassans er Ingrid Kuhlman ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, brautryðjandi og baráttukona með meiru. Ingrid deilir m.a með hlustendum hvernig ást hennar á ABBA leiddi hana eftir krókaleiðum frá Hollandi til Íslands þar sem hún hefur nú búið í um 30 ár og hvernig veikindi föður hennar fyrir nær 2 áratugum urðu til þess að hún er nú í forsvari fyrir Lífsvirðingu, félag um dánaraðstoð þar sem baráttumálið er yfirráð einstaklingsins yfir eigin lífi og dauða. Þetta og margt, margt fleira sem vert er að sperra eyrun eftir.

Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

Njótið!

 

Æðruleysið - 10. þáttur - Halldóra Skúla / seinni hluti

Velkomin/nn í Æðruleysið

Í þessum tíunda þætti heldur Þórdís Jóna áfram að tala við hana Halldóru Skúladóttur og ræða þær að þessu sinni um breytingarskeið kvenna og málefni þeim tengd. Þær fara um víðan völl í þessu málefni enda af nægu að taka, þær velta fyrir sér hvernig hægt sé að tækla þetta óumflýjanlega tímabil á jákvæðari og betri hátt. Losa um tabúin og skömm sem fylgir þessum aldri kvenna. Þær vitna m.a. í Dr.Lisu Masconi sem rannsakað hefur breytingarskeiðið mikið.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Æðruleysið - 9. Þáttur.

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

Í þessum níunda þætti deilir Þórdís Jóna með okkur sínum hugrenningum um valdeflingu einstaklingsins.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Hjartans mál - 7. þáttur

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál

þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur “Tilgangur“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari frá Dáleiðsluskóla Íslands.

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

 

Við erum einstök - 9. þáttur / Ferðalagið með gleðinni

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök"

Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir andlegur ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Í þessum níunda þætti fjallar hún um gleðina og ferðalagið með gleðinni.

Á þessum covid tímum finnst mörgum erfitt og að það sé lítið sem hægt er að gleðjast yfir og þakka fyrir, en þegar betur er að gáð er ótrúlega margt sem við tökum sem sjálfsagðan hlut en getum svo sannarlega þakkað fyrir.

Þegar gleðin tekur völd hefur þakklætið sig til flugs – og hjartað hlýnar.

þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir.

 

Verkfærakassinn XXVI - Anna Lóa og Hamingjuhornið

Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann

Gestur 26. þáttar Verkfærakassans er Anna Lóa Ólafsdóttir flugfreyja, kennari, náms- og starfráðgjafi og rithöfundur ásamt því að bera fjölmarga fleiri hatta. Anna Lóa heldur út vefsíðunni Hamingjuhornið og samnefndri síðu á Facebook, auk þess að hafa gefið út bókina „Það sem ég hef lært“ sem hún byggir m.a. á skrifum sínum á umræddum síðum. Í viðtalinu ræðir Anna Lóa líf sitt, áskoranir og lærdóm á einlægan og fallegan hátt en í samtalinu skín í gegn ástríða Önnu Lóu fyrir því að bæta sitt eigið líf og annarra um leið.

Áhugavert viðtal við áhugaverða konu.

Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Æðruleysið - 8. Þáttur - Halldóra Skúla / fyrsti hluti

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

Í þessum áttunda þætti fær Þórdís Jóna til sín magnaða konu frá þýskalandi hana Halldóru Skúladóttur í settið til að ræða þær aðferðir sem hún er að vinna með til að hjálpa fólki að styðja við og styrkja sjálfið, dáleiðslu, NLP og fleira.

Í þessu áhugaverða viðtali fara þær víða og m.a. tala um heilan sem dramadrottningu og hvernig gott er að skilja og eiga samtal við hann okkur til gagns og gamans.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Hjartans mál - 6. þáttur

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál

þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

Í þessum sjötta þætti deilir Íris með okkur eigin hugrenningum og er umfjöllunarefni þáttarins samkennd í eigin garð.

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

 

Við erum einstök - 8. þáttur / Sannleikurinn minn!!

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök"

Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Í þessum áttunda þætti fjallar hún um sannleikann , já sannleikann sinn , en hvað er sannleikur ? Sannleikurinn er tvennt í senn: Annarsvegar sá hversdagslegi eiginleiki þess sem við höldum fram, trúum og förum eftir; og hinsvegar óræður og næstum því yfirnáttúrlegur hlutur: samsvörun þess sem sagt er við það sem er í raun og veru og alveg óháð því sem sagt er. En eins og málshátturinn segir við okkur „Sannleikurinn er sagna bestur“.

þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir

 

Verkfærakassinn XXV - Gígja Árnadóttir

Verið Velkomin/nn í Verkfærakassann

Gestur 25. Þáttar Verkfærakassans er Gígja Árnadóttir fyrrverandi náms- og starfsráðgjafi. Gígja sem er 78 ára gömul segir okkur frá áhugaverðri ævi sinni á lifandi og skemmtilegan og einlægan hátt eins og henni einnig er lagið.

Hún ræðir m.a. hvernig Einar á Einarsstöðum læknaði heilaæxlið hennar á einni nóttu, ákvörðun sína að fara í nám til Kanada nýfráskilin um fimmtugt, kennsluferilinn þar sem hún var m.a. einn af fyrstu tölvukennurum á Íslandi á tíma þar sem tæknin var að ryðja sér til rúms og andlegt ferðalag sitt þar sem m.a. koma við sögu heilun, álfar, huldufólk, annar sigur á krabbameini og svo margt, margt fleira.

Ævintýralegt viðtal við kraftmikinn brautryðjenda á flestum sviðum lífsins.

Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

Njótið!

 

Æðruleysið - 7. þáttur / Sandra Björg

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs.

Í þessum sjöunda þætti fær Þórdís Jóna til sín frábæran gest hana Söndru Björg Helgadóttur til að ræða meðal annars um SMART formúluna til markmiðasetningar og fleira skemmtilegt og fræðandi. Mikilvægi þess að eiga sér drauma, þekkja sjálfan sig og árangursbrekkuna mögnuðu.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Hjartans mál - 5. Þáttur

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál

þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

Í þættinum í dag fær pistill Ágústu Óskar Óskarsdóttur “Litróf tilfinninga“ rödd en Ágústa er lærður fjölskyldumeðferðarfræðingur, með B.A gráðu í félagsráðgjöf auk þess að vera lærður dáleiðari frá Dáleiðsluskóla Íslands. Við færum henni Ágústu Ósk bestu þakkir fyrir. <3

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

 

Verkfærakassinn XXIV - Hrabbý

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann

Í þessum 24. Þætti bregður Hrabbý sér hinum megin við borðið og fær til sín gestastjórnanda hana Ölmu Hrönn englareikimeistari. Í þættinum fá hlustendur að kynnast henni Hrabbý stjórnanda Verkfærakassans aðeins betur þar sem hún spreytir sig á hinum ýmsu spurningum sem hún hefur lagt fyrir viðmælendur þáttarins hingað til.

Þær stöllur ræða lífið og tilveruna þar sem Hrabbý segir m.a. frá sjálfri sér, sínu andlegu ferðalagi og ýmsum lærdómi sem hún hefur dregið af því.

Áhugavert viðtal þar sem hún Hrabbý bregður sér hinum megin við borðið.

Njótið!!

 

Æðruleysið - 6. Þáttur

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til betra lífs.

Í þessum 6. þætti ætlar Þórdís Jóna að velta fyrir sér mikilvægi gilda. Eru gildi mikilvæg, hvernig og afhverju skipta þau okkur máli ?

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

Njótið!!

 

Hjartans mál - 4. þáttur

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál

þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál. - Í þættinum í dag fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Mætum kvíðanum“ rödd. Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook. - Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir.

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

 

Æðruleysið - 5. Þáttur

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

Í þessum fimmta þætti fær Þórdís Jóna ungan atorkusamann mann og góða fyrirmynd hann Nökkva Fjalar Orrasson í spjall um sjálfsmynd drengja og þau velta jafnframt fyrir sér mikilvægi sjálfsmyndar og uppbyggingu hennar. Í spjalli þáttarins er farið víða og m.a. yfir það hversu mikilvægt það er að eiga góð og innihaldsrík samtöl við drengi jafnt sem stúlkur og almennt okkar allra á milli.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir /Markþjálfi

 

Hjartans mál - 3. Þáttur

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál

þar sem mál hjartans fá rými og rödd og þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

Á hverjum sunnudegi munum við fræðast saman um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

Í þættinum í dag fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Bognum - brotnum ekki“ rödd. Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook. - Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir.

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

 

Við erum einstök - 7. Þáttur / Hvað vilt þú ?

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök"

Í þessum þáttum okkar segir hún Ingibjörg Þengilsdóttir ráðgjafi okkur sögur sínar í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Í þessum sjöundi þætti heldur hún áfram þar sem frá var horfið í síðasta þætti, þar sem hún talaði um mannhelgi. Hér segir Ingibjörg okkur sögu af því hvernig hún uppgötvaði hæfileika sem hún hafði og afneitaði og hvað hún gerði til þess að nýta sér þá í dag til gleði og gerði þá að atvinnu sinni. Þetta ferli krafðist þess að hún væri með góða mannhelgi".

þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir

 

Verkfærakassinn XXIII - Ragnhildur Vigfúsdóttir

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann

Í þessum 23. þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Ragnhildi Vigfúsdóttur markþjálfa og ráðgjafa um þá umbreytingu sem varð á hennar lífi eftir að hún ákvað að breyta um starfsvettvang ríflega fimmtug, söðla algjörlega um og fylgja hjartanu í átt að því að láta draumana sína rætast. Ragnhildur var m.a. í fyrsta hópi markþjálfa sem útskrifuðust hér á landi og einnig í fyrsta útskriftarhóp í jákvæðri sálfræði hérlendis.

Ferðalag Ragnhildar er um margt áhugavert og sýnir okkur svart á hvítu að það er aldrei of seint að finna ástríðuna sína og fylgja henni eftir. Ragnhildur segir okkur frá ferðalaginu og því áhugaverða starfi sem hún nú sinnir við að hjálpa öðrum að finna sitt hugrekki og láta draumana rætast. - Áhugavert viðtal við kraftmikla og skapandi konu!

Njótið!!

Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Æðruleysið - 4. þáttur

Verið velkomin/nn í Æðruleysið

í þessum fjórða þætti fær Þórdís Jóna til sín góðan gest, Fanneyju Dóru Veigarsdóttur sem hefur frá mögnuðum hlutum að segja m.a.hvað varðar val á starfsferli, hvernig hún fór að því að vinna sig út úr lágu sjálfsmati ásamt erfiðleikum í samskiptum við annað fólk.Þær spjalla um almenningsálítið og hvernig hægt er að tækla það og fara jafnframt yfir marga skemmtilega og áhugaverða hluti sem snýr að mannlegu eðli.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Við erum einstök - 6. þáttur / Mannhelgi

Verið velkomin/nn í þáttinn "Við erum einstök"

Við erum einstök - eru þættir í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum þáttum hennar segir hún okkur sína sögu í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Hvað er mannhelgi og hvaða máli skiptir hún fyrir okkur ? Í þessum þætti segir hún Ingibjörg okkur allt um það, segir okkur sögu úr sínu lífi og tengir þá sögu við mannhelgi sína"

þáttastjórnandi : Ingibjörg R. Þengilsdóttir

 

Verkfærakassinn XXII - Heimir Logi

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann

Í þessum 22. þætti Verkfærakassans liggur leið okkar upp í Kjós þar sem Hrabbý hittir fyrir viðmælanda þáttarins, Heimi Loga. Heimir hefur um árabil boðið upp á svitahof eða sweat en einmitt þar lágu leiðir hans og Hrabbýjar saman fyrir um 10 árum síðan.

Yfir tebolla ræða þau um lífið og tilveruna og Heimir deilir með okkur lífshlaupi sínu, erfiðleikum æskuáranna, 20 árum af harðri fíkniefnaneyslu, uppgjöfinni sem leiddi til bata og nýja manninum sem hefur verið í sífelldri mótun í gegnum bráðum 26 ára edrúmennsku og sjálfsvinnu. Lífsviðhorf Heimis Loga er til eftirbreytni og þar er leiðarstefnið mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin lífi, hlusta á æðri leiðsögn og umfram allt, elska sjálfan sig og aðra.

Njótið! <3

þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Æðruleysið - 3. þáttur

Velkomin/nn í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætt lífs.

Í þessum þriðja þætti höldum við áfram að forvitnast um markþjálfun og mikilvægi hennar að mati þáttastjórnanda. Þórdís Jóna fær til sín frábæra gesti, systurnar Hörpu Rós og Rebekku Gísladætur. þær eru nýútskrifaðir markþjálfar og með mikla sýn og drauma um framhaldið.  Í spjalli þáttarins er farið yfir mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig og drauma.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Hjartans mál - 2. þáttur

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd, þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

Í hverjum þætti munum við fræðast um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

Í þættinum í dag fær grein Heiðu Ósk rödd. Heiða er fíkni og forvarnaráðgjafi, auk þess að vera NLP markþjálfi. Hennar sérsvið eru fíkn, bati, fjölskyldumál og persónuleg markþjálfun. Grein dagsins fjallar um hraða dagslegs líf og hversu mikilvægt það er að hægja á sér og njóta að vera þátttakandi í eigin lífi. - Við þökkum Heiðu Ósk hjartanlega fyrir.

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

 

Verkfærakassinn XXI - Nina Wolf Feather Björg

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann

Í þessum 21. þætti Verkfærakassans er viðmælandi Hrabbýjar hún Nína Wolf Feather Björg. Umræðuefnið er lífið sjálft og stundum ævintýralegt ferðalag Nínu í leit að sjálfri sér. Í þessu einlæga spjalli ræðir Nína m.a. um það hvernig er að alast upp sem næmt barn í umhverfi sem ekki skilur mann auk þess sem hún talar á opinskáan hátt um ævilanga glímu sína við kvíða og meðvirkni. Hæfileiki Nínu til að sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu og smitandi hlátrasköll hennar lita viðtalið og sýna okkur í verki hvernig má alltaf sjá ljós við enda ganganna. Nína er svo sannarlega stormsveipur sem margt má læra af. Þó ekki sé nema óbilandi hugrekki hennar og staðfesta í að læra að elska sjálfa sig og gefast aldrei upp. Þar getum við líklegast öll svo sannarlega tekið hana til fyrirmyndar.

Njótið!

þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Æðruleysið - þáttur 2.

Velkomin/nn í Æðruleysið

Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs.

Í þessum öðrum þætti fær hún til sín góðan gest og mikla fyrirmynd hana Ástu Guðrúnu Guðbrandsdóttur markþjálfa. Í spjalli þeirra fara þær yfir víðan völl í málefnum sem snýr að markþjálfun og þeirra ástríðu sem þær deila varðandi fjölskylduna og að þekkja sjálfan sig.

Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Hjartans mál - 1. þáttur

Verið velkomin/nn í þáttinn Hjartans mál þar sem mál hjartans fá rými og rödd, þar sem mikilvægi andlegrar heilsu er okkur hjartans mál.

Í hverjum þætti munum við fræðast um andlega líðan, hugvekjur hjarta og huga og finna leiðir til sátta við okkur sjálf, auk jafnvægis í sál og líkama.

Í þessum fyrsta þætti fær grein Önnu Lóu Ólafsdóttur „Geturðu lánað mér“ rödd, en Anna Lóa er menntaður náms- og starfsráðgjafi, markþjálfi og jafnframt stofnandi Hamingjuhornsins sem hægt er að finna á Facebook.

Við færum Önnu Lóu okkar bestu þakkir fyrir.

þáttastjórnandi : Íris Hólm Jónsdóttir

 

Verkfærakassinn XX - Hugleiðsla - Stefanía frá Heillastjörnu

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann

Í þessum 20. Þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Stefaníu Ólafsdóttur frá Lótushúsi og Heillastjörnu.is. Stefanía kynntist sjálf hugleiðslu fyrir nær 2 áratugum og kennir nú í Lótushúsi ásamt því að halda hugleiðsluvefnum Heillastjarna.is þar sem nálgast má fjölbreyttar hugleiðslur fyrir börn og unglinga. Stefanía segir okkur frá sínu persónulega ferðalagi þar sem hún lærði að takast á við fullkomnunaráráttu, kvíða og streitu og kynntist um leið sjálfri sér upp á nýtt. Fræðandi og áhugavert viðtal við sannan brautryðjanda!

Þáttastjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Æðruleysið - Þáttur 1

Velkomin/nn í þáttinn Æðruleysið

Í þessum fyrsta þætti segir hún Þórdís Jóna okkur meira frá sjálfri sér, sinni reynslu og hvað henni finnst virka best fyrir sig við að hafa rútínu og halda jafnvægi í sinu lífi m.a. með dagsplani, 8 8 8 og að ástunda þakklæti og að vera alltaf besta útgáfan af sjálfri sér hverju sinni.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Verkfærakassinn XIX - Englaspil, kristallar o.fl

Velkomin/nn í Verkfærakassann

Í þessum 19. Þætti verkfærakassans ræðir Hrabbý við Ölmu Hrönn englareikimeistara og miðil um ýmis tæki og tól svo sem englaspil, steina, hugleiðslur og jarðtengingu sem við getum notað sjálf til að hjálpa okkur að ná jafnvægi í daglegu lífi. Sem og áður er Alma stútfull af fróðleik og segir okkur frá sinni reynslu af þessum verkfærum ásamt því að gefa þeim sem hafa áhuga á að nýta sér þau góð og praktísk ráð um fyrstu skrefin.

Njótið!

 

Æðruleysið - kynningarþáttur

Velkomin/nn í þáttinn Æðruleysið

Í þáttunum Æðruleysið mun hún Þórdís Jóna Jakobsdóttir fjalla um og taka fyrir hin ýmis málefni, fræðslu, spjall og almennan fróðleik um forvarnir, lausnir og ýmsar leiðir til bætts lífs.

Í þessum fyrsta þætti sem er jafnframt kynningarþáttur segir hún Þórdís Jóna okkur frá sjálfri sér , sínu námi og því sem framundan er í komandi þáttum. Markmið þáttarins er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til.

Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun.

þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir

 

Verkfærakassinn XVIII - Erna Marín - Markþjálfun og ADHD

Velkomin/nn í Verkfærakassann

Í þessum 18. þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Ernu Marín Kvist Baldursdóttur. Viðfangsefnið er lífið sjálft og það ferðalag sem Erna Marín fór í til að finna leið að betri andlegri og líkamlegri heilsu. Hún fékk m.a. ADHD greiningu á fullorðinsárum og segir hlustendum frá því hvernig hún nýtti sér markþjálfun til að ná betri tökum á lífinu. Svo hrifin varð hún að hugmyndafræðinni að hún ákvað að gerast sjálf markþjálfi og hefur nýlokið því námi.
Áhugavert spjall við kraftmikla konu.

Þáttastjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Verkfærakassinn XVII - Sigurlaug frá Kærleikssamtökunum

Velkomin/nn í Verkfærakassann
Í þessum 17 þætti verkfærakassans ræðir Hrabbý við Sigurlaugu Guðnýju Ingólfsdóttur forsvarsmann Kærleikssamtakanna. Sigurlaug segir hlustendum á afar einlægan hátt frá baráttu sinni við geðsjúkdóma og ákvörðun sinni um að ná bata án geðlyfja sem leiddi hana í viðburðaríkt ferðalag sjálfskoðunar. Samtalið fer víða þar sem þær ræða meðal annars bækur sem Sigurlaug skrifaði sem hluta af bataferlinu, stofnun og tilgang Kærleikssamtakanna og hugmyndafræðina á bak við áfangaheimili sem samtökin nú reka fyrir þá sem ekki eiga í önnur hús að vernda. Afar áhugavert og hugvekjandi spjall við hugsjónakonu sem farið hefur óhefðbundnar leiðir til að ná árangri, bæði í sinni eigin sjálfsvinnu sem og við að hjálpa öðrum. Njótið!

www.thuskiptirmali.is

 

Verkfærakassinn XVI - Halla himintungl

Velkomin/nn í Verkfærakassann

Viðmælandi Hrabbýar í þessum sextánda þætti Verkfærakassans er heilarinn, nuddarinn, leiðsögukonan og stjörnuspekingurinn Halla Himintungl. Halla segir okkur meðal annars frá kviðnuddsmeðferð sem hún býður upp á en sú meðferð er byggð á mörg þúsund ára gamalli austurlenskri hefð og læknisspeki. Inn í spjallið fléttast áhugaverðar frásagnir Höllu m.a. af því þegar hún varð peningalaus strandaglópur í tælensku klaustri í miðju efnahagshruni og hvernig sú reynsla færði hana á þann stað sem hún er í dag. Afar fræðandi og skemmtilegt spjall við áhugaverða konu. Í seinni hluta þáttarins ræðir Hrabbý svo við Ingu Birnu tilraunadýr sem prófaði kviðnudd hjá Höllu.

þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Ekki tabú / Sjálfsvinna & Jólastress

Velkomin/nn í Ekki tabú!

Í þriðja þætti Ekki tabú ræðir Sjana Rut aðeins um sjálfsvinnu og jólastressið.
Hún talar meðal annars um mikilvægi samkenndar og góðri umgengni við sjálfan sig, aðra og umhverfið.

Þáttastjórnandi : Sjana Rut Jóhannsdóttir

Tölum saman og rjúfum þögnina
#ekkitabu 🗯

 

Verkfærakassinn XV - Hrönn spámiðill

Í þessum fimmtánda þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Hrönn Friðriksdóttur spámiðil og andlegan kennara. Hrönn segir okkur meðal annars frá sinni reynslu af því að uppgötva og rækta skyggnigáfu sína og hvernig hún hefur hjálpað öðrum að gera slíkt hið sama. Umræðan er fjölbreytt þar sem þær velta fyrir sér spurningum eins og " Hvað er að vera andleg manneskja? Hvernig ræktar maður sína andlegu hlið ? Og af hverju er það mikilvægt. ? " Innan um þessar lífsspekilegu pælingar leynast svo frásagnir Hrannar af áhugaverðum samskiptum við náttúruverur eins og álfa og huldufólk auk þess sem þær ræða um drauma og þýðingu þeirra, ásamt mörgu fleira áhugaverðu“.

Skemmtilegt spjall við mjög áhugaverða konu.

Þáttastjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Verkfærakassinn XIV - Tunglið

„Í þessum fjórtánda þætti Verkfærakassans er umfjöllunarefnið sjálft tunglið. Tunglið er leyndardómsfullt og þó svo að maðurinn hafi stigið þar fæti og vísindin skoðað það í bak og fyrir er ráðgátan um áhrif þess á okkur mennina ennþá að miklu leyti hjúpuð dulúð. Samband okkar við tunglið er jafn langt mannkyninu og heimildir um athafnir því tengdar má finna í gömlum ritum langt aftur í aldir. Sagnir af nornum að dansa undir fullu tungli finnast víða, sumar sögur fjalla um tunglsýki og að verur eins og varúlfar fari jafnvel á kreik á fullu tungli. Þann 30 nóvember s.l. var fullt tungl og að því tilefni settist Hrabbý niður með Ölmu Hrönn heilara og englareikimeistara til að ræða við hennar sýná það hvaða áhrif tunglið hefur á okkurog til að forvitnast um hvort við getum nýtt okkur það á einhvern hátt með því að fylgja því betur eftir og nýta okkur krafta þess.

Þáttastjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Ekki tabú / Viðtal við sálfræðing um kvíða


Velkomin/nn í Ekki tabú 

Í þessum öðrum þætti af Ekki tabú heldur Sjana Rut áfram umræðunni um kvíða og fær hér hana Tinnu Þorsteinsdóttur sálfræðing frá Kvíðameðferðastöðinni með sér í lið að ræða málin. - Léttur og fræðandi þáttur um margt sem tengist kvíða

Þættirnir henta fólki á öllum aldri sem vilja hlusta á léttar, fræðandi og áhugaverðar umræður um hin ýmsu tabú málefni

Þáttastjórnandi : Sjana Rut Jóhannsdóttir

 

Verkfærakassinn XIII - Fanney stjörnuspekingur.


„Í þessum þrettánda þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Fanneyju Sigurðardóttur stjörnuspeking og miðil. Spjall um stjörnuspeki þróaðist afar fljótt yfir í umræðu um næmni og geðsjúkdóma þar sem Fanney segir okkur á einlægan og opinskáan hátt frá baráttu sinni við geðhvarfasýki allt frá barnæsku og hvernig innsæið hennar og næmni hafa hjálpað henni í þeirri baráttu. Einlægt og fallegt spjall við afar áhugaverða konu. - Í seinni hluta þáttarins fá hlustendur svo að heyra hugleiðingar Írisar Hólm eftir að hafa hitt Fanneyju og fengið hjá henni stjörnukort og lestur. Við vonum að þið njótið vel og farið vel með ykkur í vetrarveðrinu.“

Þáttastjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Ekki tabú / Kvíði.

Í fyrsta þættinum af Ekki tabú ræðir hún Sjana Rut almennt um kvíða og les meðal annars upp nokkrar reynslusögur sem hún fékk sendar til sín ásamt því að deila sinni eigin reynslu á að glíma við kvíða.

Þáttastjórnandi : Sjana Rut Jóhannsdóttir

Tölum saman og rjúfum þögnina!

 

Verkfærakassinn XII - Þankar Þorra

Verið velkomin/nn í Verkfærakassann!

„Í þessum tólfta þætti Verkfærakassans ræðir Hrabbý við Þormóð Símonarson rithöfund, tónlistarmann, trukkabílstjóra og skógræktarbónda svo eitthvað sé talið. Þormóður eða Þorri eins og hann er kallaður er fullur af pælingum og fróðleik um lífið og tilveruna sem gaman er að hlusta á. Þau ræddu meðal annars um árslanga mótorhjólaferð hans um Bretlandseyjar og Skandinavíu til að elta tónlistardrauminn, dvöl hans í munkaklaustri í Skotlandi í leit að sjálfum sér, bækurnar hans, aðlöðunaraflið og margt margt fleira.“

Þáttastjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Ekki tabú / kynningarþáttur

Velkomin/nn í þáttinn Ekki tabú

Í þáttunum ´Ekki tabú´ mun hún Sjana Rut m.a. fjalla um erfið í bland við létt en óþægileg málefni, forvarnir og umræðuefni sem af mörgum talin eru tabú og mun hún nálgast þau á uppbyggilegan, jákvæðan og fræðandi hátt.

Markmið þáttarins er að gera tabú umræðuefni ‘ekki tabú’ og opna fyrir umræðuna í gegnum almennt spjall, viðtöl, reynslusögur og fleira...

þáttastjórnandi : Sjana Rut Jóhannsdóttir

Tölum saman og rjúfum þögnina

 

Verkfærakassinn XI - Brennan heilun.

Velkomin/nn í Verkfærakassann

Í þessum ellefta þætti verkfærakassans heimsækjum við Jóhönnu Jónasar Brennan heilara. Auk þess að spyrja hana nánar um Brennan heilun, forvitnumst við um ástæðurnar fyrir því að Jóhanna ákvað að yfirgefa leiksviðið og snúa sér að heilun og magadansi.

Áhugavert spjall við afar áhugaverða konu!
Þáttastjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 12

Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur frá vinum í bata.
Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.

 

Verkfærakassinn X - Reimleikar

Velkomin/nn í Verkfærakassann!

Í tilefni þess að Allraheilagramessa, einnig þekkt sem Samhain (Hátíð hinna dauðu) eða Hrekkjavaka í daglegu tali er nú nýliðin, er þessi tíundi þáttur Verkfærakassans helgaður reimleikum, draugagangi og ýmis konar óværu. Öll eigum við einhvers konar sögur af reimleikum eða þekkjum einhvern sem hefur frá slíku að segja. Til að fá nokkrar alvöru draugasögur beint í æð heimsótti Hrabbý þær mæðgur Ölmu Hrönn englareikimeistara og Hrönn Friðriksdóttir spámiðil auk þess sem hún leit í sóttfarinn kaffibolla til Vigdísar Steinþórsdóttur hjúkrunarfræðings. Allar höfðu þær frá merkilegum og skemmtilegum sögum að segja tengdum draugum, púkum, reimleikum og annarri óværu. - Njótið!

Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Verkfærakassinn IX - Andleg vernd.

Velkomin/nn í Verkfærakassann 

"Öll getum við líklegast kannast við það að hafa upplifað erfiða eða óþægilega orku. Meðal annars við komum inn í krefjandi aðstæður eða þurfum að takast á við einstaklinga sem draga úr okkur allan mátt svo við rétt náum að dröslast upp í sófa og kveikja á Netflix þegar að heim er komið. Svo eru það blessaðir draugarnir sem oft geta valdið miklum óþægindum. Margir kannast líklega við að hafa vaknað upp við framandi og óþægilega orku eða nærveru og fyllst ótta. En hvað er þetta sem við erum að skynja? Og hvað getum við gert til þess að hjálpa okkur að skilja OG vernda okkur betur fyrir þessu? Til að fá svör við þessum spurningum og mörgum fleiri leitaði Hrabbý aftur til Ölmu Hrannar englareikimeistara og miðils. - Í þessum fróðlega pistli talar Alma um verndarengla, dreka, drauga, umbreytingu orku, bænina og margt, margt fleira og kennir hlustendum ýmsar aðferðir til að takast á við erfiða orku".

Þáttarstjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Verkfærakassinn VIII - Hvað er í gangi ?

Í þessum áttunda þætti Verkfærakassans leitar Hrabbý svara við því af hverju við manneskjurnar og jörðin virðumst vera að ganga í gegnum mikið óróleikatímabíl. Stjörnuspekingar og andlegir spekúlentar tala um orkubreytingar sem helstu orsökina en hver er þessi orka sem er að breytast og í hverju felast breytingarnar? Hvernig hefur orkan áhrif á okkur og hvað þurfum við að gera til að finna jafnvægi? Til að ræða þessi mál kíkti Hrabbý aftur í heimsókn til Ölmu Hrannar englareikimeistara og miðils sem nýverið birti pistil á síðunni sinni um einmitt þetta viðfangsefni. Í seinni hluta þáttarins slæst Hrönn Friðriksdóttir spámiðill og móðir Ölmu í hópinn, dregur upp spilin og segir okkur aðeins frá því við hverju við megum búast af þessari umtöluðu orku næstu vikur og mánuði.

Þáttarstjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Verkfærakassinn VII - Börn.

Í sjöunda þætti Verkfærakassans er sjónum beint að börnum og hvernig heildrænar meðferðir geta hjálpað þeim með ýmsa andlega og líkamlega kvilla. Hrabbý til aðstoðar er Alma Hrönn Hrannardóttir englareikimeistari og miðill sem fjallar sérstaklega um næmni barna og hvernig má efla og styrkja þau með því að kenna þeim leiðir til læra inn á næmnina og nýta sér hana í daglegu lífi. Að auki ræða viðmælendur fyrri þátta Verkfærakassans um starf sitt með börnum m.a. til að takast á við kvíða, athyglisvanda, ofvirkni, ofnæmi, fóbiur og fleira. Áhugaverður þáttur fyrir alla foreldra!

Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Verkfærakassinn VI - OPJ

Í sjötta þætti Verkfærakassans fjallar Hrabbý um séríslenska heilunarmeðferð sem gengur undir nafninu orkupunktajöfnun eða OPJ. - Í fyrri hluta þáttarins er rætt við Guðnýju Stefnisdóttur heilara sem hefur boðið uppá OPJ meðferðir til fjölda ára, auk þess að reka skóla þar sem þessi meðferð er kennd. - Í seinni hluta þáttarins spjallar Hrabbý svo við hana Elísabetu Ormslev söngkonu, sem skellti sér í tíma hjá Guðnýju og ætlar að deila með okkur sinni reynslu. „Virkilega fróðlegur og skemmtilegur þáttur með frábærum viðmælendum“!

Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Verkfærakassinn V - KAP

„Í þessum fimmta þætti Verkfærakassans ætlum við að fjalla KAP eða „Kundalini Activation Process“. Til að fá frekari upplýsingar um KAP heimsóttum við þau Gísla Rafn og Sunnevu hjá „KAP Facilitators Iceland“ en þau bjóða bæði uppá hópatíma og einkatíma í þessari merðferðartækni. Í seinni hluta þáttarins ræði ég við hana Ingu Birnu sem er tilraunadýrið mitt að þessu sinni. Hún skellti sér í hópatíma og ætlum við að fræðast um það hvernig hún upplifði fyrsta KAP tímann sinn“

Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir.

 

Verkfærakassinn IV - Hómópatia

„Í þessum fjórða þætti Verkfærakassans ætlum við að fjalla um hómópatíu sem áður voru kallaðar smáskammta lækningar á Íslensku. Í þættinum förum við í heimsókn til hennar Guðrúnar Tinnu Thorlacius hómópata og fáum að forvitnast aðeins um hennar starf og hvað felst í því að vera hómópati. Í seinni hluta þáttarins spjöllum við svo við hana Karitas Hörpu en hún var alveg eins forvitin og við, að vita hvaða hómópatía væri og skellti sér í einn tíma til hennar Guðrúnar Tinnu og við fáum að heyra hvað henni fannst“. Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir.

 

Verkfærakassinn III - Heilun.

Í þessum þriðja þætti Verkfærakassans ræðir hún Hrabbý við hana Ölmu Hrönn Hrannardóttir heilara, um hennar fjölbreytta starf en þar bar meðal annars á góma tal um drauga, engla og náttúruverur. Í seinni hluta þáttarins fær Hrabbý svo til sín í heimsókn hana Evu, en Eva hefur farið til Ölmu í heilun reglulega í rúmt ár og ætlar hér að segja okkur allt um sína reynslu af þessu meðferðarformi.

 

Verkfærakassinn II - Dáleiðsla.

Í öðrum þætti Verkfærakassans ræðir hún Hrabbý við hann Bjarna Steinar Kárason einkaþjálfara, en hann hefur þróað meðferðarform þar sem hann blandar saman dáleiðslu og markþjálfun. Og í seinni hluta þáttarins fær hún svo einn af skjólstæðingum Bjarna í heimsókn til sín þar sem hann segir okkur aðeins frá sinni reynslu af dáleiðslu og þeim árangri sem hann hefur náð.

 

Verkfærakassinn I - Dáleiðsla

Í þessum fyrsta þætti verður skyggnst inn í heim dáleiðslunnar og í þetta skiptið verður sjónum beint að fyrri lífa dáleiðslu. Í fyrri hluta þáttarins er tekið hús á Vigdísi Steinþórsdóttur hjúkrunarfræðingi en hún hefur sérhæft sig í þessari tegund dáleiðslu. Vigdís segir okkur frá þessu merkilega meðferðarformi og reynslu sinni af því, bæði sem meðferðaraðili og á sínu eigin persónulega ferðalagi til betra lífs. Í seinni hluta þáttarins er rætt við hana Írisi sem fór á vegum þáttarins til Vigdísar og prófaði dáleiðslu til fyrri lífa í fyrsta skiptið. Hún hefur margt áhugavert að segja sem gaman er að hlusta á. - Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 11.

Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur frá vinum í bata - Í þessum þætti heyrum við reynslu konu sem var föst í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hún lausn og lifir í dag hamingjusöm , glöð og frjáls.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 10.

Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur frá vinum í bata - Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 9.

Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur frá vinum í bata - Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.

 

Von og líf - þáttur 5.

„Von og líf“ er fræðsluþáttur sem inniheldur m.a. forvarnir, sjálfstyrkingu og jákvæðan boðskap sem er nauðsynlegur fyrir alla.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 8.

Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur frá vinum í bata - Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 7.

Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur frá vinum í bata - Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.

 

Von og líf - þáttur 4.

„Von og líf“ er fræðsluþáttur sem inniheldur m.a. forvarnir, sjálfstyrkingu og jákvæðan boðskap sem er nauðsynlegur fyrir alla.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 6.

Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur frá vinum í bata - Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.

 

Ljós í myrkri - spjallþáttur III.

Ljós í myrkri er spjallþáttur um fólk og málefni og er hér rætt m.a. við einstaklinga sem að hafa verið myrkrinu en fundið með hjálp leiðina inní lausnina og lifa í dag góðu lífi. Í þessum þáttum fáum við m.a.. til okkar fólk úr samfélaginu í spjall sem segir okkur hvernig líf þeirra var, hvað gerðist og hvernig það er í dag.

 

Spilafíkn.

Spilafíkn getur dulist lengur og betur en áfengissýki eða önnur fíkninefnaneysla. Það er vegna þess að spilafíkilinn ber ekki fíkn sína utan á sér með sama hætti og áfengissjúklingar og líkamlegir tilburðir verða ekki eins áberandi. En engu að síður endar hún með sama hætti og hjá alkahólistum, þ.e. með geðveiki eða dauða, nema mikið inngrip eigi sér stað.

 

Von og líf - þáttur 3.

„Von og líf“ er þáttur sem inniheldur m.a. fræðslu , forvarnir, sjálfstyrkingu og jákvæðan boðskap sem er nauðsynlegur fyrir alla.

 

Ungt fólk og batinn.

Eðli fíknar er þannig að á endanum er botninum náð, eða jafnvel mörgum botnum. Ungt fólk sem prófar vímuefni í fyrsta skipti, þarf ekki að falla í skóla, glata öllu sem þeim er kært, enda í fangelsi eða standa við dauðans dyr. En margir ná oft því stigi áður en þau taka ákvörðun eða fá hjálp við það að leita bata, meðan aðrir eru heppnari en svo. Oft stendur einstaklingurinn frammi fyrir enn meiri erfiðleikum en margir hafa upplifað, þegar reynt er að snúa við af leiðinni. Í þessum þætti er fjallað um þá leið sem hægt er að fara til að finna lausnina frá fíkn áður en það verður of seint.

 

Áhættuþættir sjálfsvíga.

Sjálfsvíg eiga sér margar og flóknar skýringar og því er ekki hægt að fullyrða að um eina meginskýringu sé að ræða. Orsakir sjálfsvígs eru flókið samspil geðrænna, sálrænna, félagslegra og lífeðlisfræðilegra þátta. Ekki er því unnt að rekja beinar orsakir sjálfsvígs en þó er unnt að greina áhættuþætti og atferli sem stuðlað getur að því að einstaklingur fremur sjálfsvíg.

 

Er unglingurinn minn í neyslu ?

Þekking á áhættuþáttum og einkennum vímuefnaneyslu getur komið sér vel, í tilfellum þar sem um neyslu vímuefna er að ræða eða hætta er á slíku. Einnig til að koma í veg fyrir misskilning, óþarft vantraust og grunsemdir vegna atvika eða hegðunar sem ekkert hefur með neyslu vímuefna að gera.

 

Von og líf - þáttur 1.

„Von og líf“ er þáttur sem inniheldur m.a. fræðslu , forvarnir, sjálfstyrkingu og jákvæðan boðskap sem er nauðsynlegur fyrir alla.

 

Góð sjálfsmynd - sterk forvörn.

Sterk sjálfsmynd er eitt besta veganesti sem unglingar geta fengið út í lífið þar sem hún eykur líkurnar á velgengni og vellíðan. Með því að styrkja sjálfsmyndina er því unnið að forvörnum gegn þunglyndi, kvíða, óábyrgri áfengisneyslu, vímuefnaneyslu, brottfalli úr skóla o.fl.

 

Slepptu takinu.

Það að sleppa takinu af einhverju sem þú hefur ríghaldið í er ekki veikleikamerki, heldur merki um að þú sért að þroskast.  Það býr feikna kraftur og andlegur styrkur í því að leyfa sér að vera með opin huga og hlusta eftir því sem aðrir hafa að segja og taka tillit til þeirra skoðana.  Þú getur jafnvel komist að því með því að gera þetta,  getur það umbreytt erfiðum aðstæðum sem þú finnur þig í.

 

Ljós í myrkri - þáttur II.

Ljós í myrkri er spjallþáttur um fólk og málefni og er hér rætt m.a. við einstaklinga sem að hafa verið myrkrinu en fundið með hjálp leiðina inní lausnina og lifa í dag góðu lífi. Í þessum þáttum fáum við m.a.. til okkar fólk úr samfélaginu í spjall sem segir okkur hvernig líf þeirra var, hvað gerðist og hvernig það er í dag.

 

Bætt hugsun til betra lífs - þáttur 6.

Bætt hugsun til betra lífs er þáttur þar sem hann Bjarni Steinar Kárason einkaþjálfari og markþjálfi tekur fyrir ýmsar hliðar sem koma að forvörnum hugans og hvernig hægt er að temja hugann í átt til betra lífs. “Í þessum sjötta þætti fær Bjarni Steinn góðan gest til sín í sófann þar sem hann spjallar við hann og fær að skyggnast inní líf hans og fræðast um hans sögu , hvernig þetta var , hvað gerðist og hvernig líf hans er í dag“.

 

Heilbrigt Líf - þáttur 4 .

Heilbrigt líf - er þáttur í umsjón Dagnýjar Pálsdóttur. - Í þáttunum segir hún frá reynslu sinni, draumum og hugrenningum í gegnum lífið og tekur fyrir málefni sem fólk getur vel tengt við og margir eru að fara í gegnum í sínu lífi. „Í þessum fjórða þætti hennar sem við köllum “Það er alltaf VON“ talar Dagný opinskátt um reynslu sína af því að lifa í myrki og vera í algjörri uppgjöf á lífinu, þar sem hún var m.a. farin að skaða sjálfa sig og reyndi að taka líf sitt“. - Kæri vinur ÞÚ skiptir máli, tölum upphátt og verum góð hvert við annað.

 

12. sporin - “Hugrekki til að breytast”.

Eftirfarandi þáttur um sporin 12 eru ábendingar varðandi sporin, og einnig til að hjálpa nýliðum að nálgast persónulega sporavinnu sína svo þeir mikli síður fyrir sér það verkefni. Að sjálfsögðu er hægt að líta á sporin 12 frá ótal mörgum hliðum. Umfjöllunin og ábendingarnar hér eru því einungis ein leið til að nálgast þessa vinnu. Vert er einnig að benda á að sporin 12 er fyrst og fremst andlegt prógramm, en um leið og það er heiðarleika og framkvæmdarprógramm.

 

Heilbrigt líf - þáttur 3.

Heilbrigt líf - er þáttur í umsjón Dagnýjar Pálsdóttur. - Í þáttunum segir hún frá reynslu sinni, draumum og hugrenningum í gegnum lífið og tekur fyrir málefni sem fólk getur tengt við og margir eru að fara í gegnum í sínu lífi. „Í þessum þriðja þætti fer hún náið í sögu sína og fjallar á einlægan hátt um skilnað foreldra, anorexiu, tilfinningar, líkamsímynd og fleira."

 

Við erum einstök - þáttur 5.

Við erum einstök - eru þættir í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum þáttum hennar segir hún okkur sína sögu í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. - „Við erum öll að fara í gegnum erfiða tíma í þjóðfélaginu og um allan heim og í þessum þætti fer Ingibjörg inná margt hvað við getum gert fyrir okkur og fólkið okkar , því öll getum við gert eitthvað , því að öll erum við einstök“

 

Bréf frá sjúkdómnum fíkn.

Til umhugsunar fyrir þá sem eru að glíma við sjúkdóminn fíkn, afhverju við verðum að snúa við til betra lífs.

 

Heildarsýn - þáttur 7.

Heildarsýn er forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur inn í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. "Í þessum þætti ræðir Sveinn Ingi um það hvernig á að bregðast við í kringumstæðum þegar börn og ungmenni hefja af fyrra bragði umræðu um ofbeldi , neyslu og fleira og hvað er gott að hafa í huga í þeim samtölum".

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 5.

Í þáttunum "Frelsi frá fíkn" heyrum við reynslu fólks sem var fast í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fundu þau lausn og lifa í dag hamingjusöm, glöð og frjáls frá fíkn , hér segja þau okkur hvernig þetta var, hvað gerðist og hvernig þetta er í dag.

 

Verðlaun lífsins.

Hefur þú velt því fyrir þér hver verðlaun lífsins eru. Getur það verið að verðlaunin séu af hinu veraldlega af eigum okkar eða af því sem okkur langar í eða það sem að okkur vantar. Eru verðlaunin fólgin í veraldlegum eigum eða einhverju öðru.

 

Við erum einstök - þáttur 4

Við erum einstök - eru þættir í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum þáttum hennar segir hún okkur sína sögu í stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Í þessum fjórða þætti sem kallar hún „Úr einángrun í kærleik" heldur hún Ingibjörg áfram sögu sinni þar sem frá var horfið í síðasta þætti. "Eitt það stórkostlega við mannlífið er hversu fjölhæf, mismunandi og ólík við erum en allir eiga sitt eitthvað og öll höfum við okkar reynslusögu. - Því öll erum einstök“

 

Hæfileikar og geta.

Hæfileikar eru hlutir sem að við höfum öll og við höfum mikið af þeim en sjaldnast kunnum við á þá alla og er þetta fyrirbæri oft vannýtt og lítið notað. Það er frekar getan sem stjórnar því hvað við gerum og gerum ekki, ekki hæfileikarnir . Ef að það er ekki samræmi milli hæfileika og getu þá náum við ekki árangri í því sem við erum að gera í dags daglegu lífi.

 

Bætt hugsun til betra lífs - Þáttur 5.

Bætt hugsun til betra líf" er podcast þáttur þar sem hann Bjarni Steinar Kárason einkaþjálfari og markþjálfi tekur fyrir ýmsar hliðar sem koma að forvörnum hugans og hvernig hægt er að temja hugann í átt til betra lífs. “Í þessum fimmta þætti sem hann kallar "Þekktu sjálfan þig" fjallar hann um hversu miklvægt það er að þekkja sjálfan sig , sínar tilfinningar og þann kraft sem býr innra með þér og hver sé einfaldasta leiðin til að komast að því hver við erum í raun og veru”.

 

Heildarsýn - Þáttur 6.

Heildarsýn er forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „Í þessum þætti fjallar Sveinn Ingi um „Mörk“ hversu mikilvægt það er að setja mörk , hvort sem er að setja sjálfum okkur mörk eða fólkinu í kringum okkar, við þurfum að standa með okkur sjálfum og setja okkur sjálf í fyrsta sæti.

 

Heildarsýn - Þáttur 5.

Heildarsýn er forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „Í þessum fimmta þætti af Heildarsýn fjallar Sveinn Ingi um nokkrar skilgreiningar, hugtök og hugmyndafræði varðandi fíkn og vímuefnasýki sem gott er fyrir nýliðann og aðstandendur að vita , hvort þú ert að glíma sjálf/ur við fíkn og neyslu eða ert aðstandandi“.

 

Átröskun.

Átraskanir eru alvarlegir langvinnir geðsjúkdómar sem einkennast af miklum truflunum á mataræði. Þekktustu átraskanirnar eru lystarstol (anorexía) og lotugræðgi (búlemía), en í báðum þessum tilfellum eru sjúklingarnir mjög uppteknir af líkamsþyngd og hræðslu við að þyngjast. Átraskanir valda iðulega alvarlegum líkamlegum og andlegum einkennum sem geta í verstu tilfellum leitt til dauða.

 

Við erum einstök - þáttur 3.

Við erum einstök - eru þættir í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þáttum hennar segir hún Ingibjörg okkur reynslusögu sína í þeirri stöðugri leit að sjálfri sér í gegnum lífið. Í þessum þriðja þætti sem kallar hún „Flutningar" heldur hún Ingibjörg áfram sögu þar sem frá var horfið í síðasta þætti. "Já! eitt það stórkostlega við mannlífið er hversu fjölhæf, mismunandi og ólík við erum, allir eiga sitt eitthvað og öll höfum við okkar sögu. já!! Við erum öll einstök“

 

Heildarsýn - þáttur 4

Í þessum fjórða þætti af Heildarsýn sem jafnframt er þriðji hluti af þremur um það merka málefni „Meðvirkni“ sem svo margir eru að glíma við. – Í þessum þætti talar hann Sveinn Ingi Bjarnason félagsráðgjafi um það hvernig hægt er að bregðast öðruvísi við í mörgum þeim hugsana villum og aðstæðum sem meðvirklar koma sér í. Hann fer yfir þær æfingar sem hægt er að gera og þau úrræði sem í boði eru, sem hjálpar þér að setja sjálfum þér og öðrum mörk, byggja upp sjáfsvirðinguna og þannig líða betur með sjálfa/n þig og þína kosti.“

 

“Skaðsemi áfengis og fíkniefna”. - Forvarnir hefjast heima II

Talaðu við barnið þitt um skaðsemi áfengis og fíkniefni. Sú fræðsla skiptir máli. Vímuefnaneysla unglinga getur raskað uppvaxtarferli þeirra og ógnað velferð þeirra og framtíð. Eftir því sem unglingar byrja fyrr að neyta vímuefna aukast líkurnar á að þeir ánetjist þeim, hætti í skóla, einangrist félagslega, fái sjúkdóma, lendi í slysum og verði fyrir óæskilegri kynlífsreynslu. Börn og unglingar eiga rétt á vímulausu umhverfi. það er afar  mikilvægt að skapa tækifæri til að eiga þetta áríðandi samtal við barnið þitt.

 

Þetta hófst allt þegar var 5 ára gömul - (saga af ofbeldi)

Oft tengist ofbeldi innan fjölskyldu áfengismisnotkun eða misnotkun á vímuefnum af einhverju tagi. Því oft veldur langvarandi misnotkun áfengis og vímuefna ofbeldishneigð. Þeir sem búa við ofbeldi af einhverju tagi, reyna oftast að fela það út á við og verður ofbeldið þannig gjarnan best varðveitta leyndarmál fjölskyldunnar, sem samt er svo nauðsynlegt að tala um. 

 

Dulbúið ofbeldi.

Andlegt ofbeldi er ósýnilegt og dulbúið og þess vegna getur verið erfitt að koma auga á það. Andlegt ofbeldi er m.a. algengt innan fjölskyldna og í nánasta umhverfi barna og getur verið í formi t.d. hótana, niðurlægingu, einelti, auðmýkingu, ógnun og vanrækslu og lengi muna börnin.

 

Forvarnir hefjast heima.

Með því að gefa barni sínu tíma og byggja upp góða sjálfsmynd og traust innan fjölskyldunnar geta foreldrar dregið verulega úr líkum þess að barnið ánetjist vímuefnum þegar það kemst á unglingsár. Vímuefnaneysla unglinga getur raskað uppvaxtarferli þeirra og ógnað velferð þeirra og framtíð. Eftir því sem unglingar byrja fyrr að neyta vímuefna aukast líkurnar á að þeir ánetjist þeim, hætti í skóla, einangrist félagslega, fái sjúkdóma, lendi í slysum og verði fyrir óæskilegri kynlífsreynslu. Börn og unglingar eiga rétt á vímulausu umhverfi.

 

Heildarsýn - þáttur 3

Í þessum þriðja þætti af Heildarsýn fjallar Sveinn Ingi Bjarnason félagsráðgjafi um meðvirkni en þetta er jafnframt annar þátturinn af þremur þar sem hann er að ræða það merka málefni, sem margir eru að glíma við. - Meðvirkni er ákveðið samskiptamynstur sem þróast hjá fólki, oft t.a.m. hjá aðstandendum alkóhólista og fíkla.- „Lykil atriði í meðvirkum samböndum er að setja sjálfum sér og öðrum mörk og æfa sig í því að fara eftir þeim, taka lítil skref og vera meðvitaður í tali og láta hegðun og líðan annara ekki draga sig aftur inn í meðvirk samskipti“

 

Ég játaði mig sigraða (reynslusaga)

"Ég játaði mig sigraða, áfengið var mér yfirsterkara og allt hrundi í kringum mig þar til ég komst á minn fyrsta AA fund og kynntist sporunum, þá breyttist allt". Hér heyrum við reynslusögu alkóhólista sem var föst í heimi neyslunnar , hvernig þetta var , hvað gerðist og hvernig líf hennar er í dag.

 

Ný áskorun.

Ertu að takast á við einhver verkefni sem þú ert þreyttur á ? Ertu að vinna að einhverju takmarki en gleðin er farin úr vinnunni ? Þegar við tökumst á við ný verkefni eða áskoranir er algengt að S-in þrjú banki upp á í ferlinu.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 4.

“Reynslusaga fra vin í bata” - Í þessum þætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls frá fíkn.

 

Segðu já við lífinu.

Óttinn minn er sá sami og hjá flestum öðrum – ótti við höfnun. Ekki frá einhverjum sérstökum einstaklingi heldur frá lífinu. Þetta er sammannleg tilfinning sem því miður getur haft þau áhrif að maður tekur síður áhættur og fer á mis við að kanna lífið. Ímyndaðu þér hvernig það væri að upplifa líf án óttans við að elska eða að vera ekki elskaður. Að þú værir ekki að rogast með ótta við höfnun og hefðir ekki þessa miklu þörf fyrir að vera samþykktur hvort sem það tengist vinnu eða einkalífi. - Segðu já við lífinu og taktu öllum verkefnum með jákvæðni og horfðu á þau sem leið til að þroskast.  

 

Heildarsýn - þáttur 2.

Heildarsýn er nýr forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur inn í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „í þessum öðrum þætti af Heildarsýn fjallar Sveinn Ingi um Meðvirkni en þetta er jafnframt fyrsti þátturinn af þremur þar sem hann ætlar að ræða um það merka málefni, sem margir eru að glíma við „En Meðvirkni er ákveðið mynstur sem þróast hjá fólki, oft t.a.m. hjá aðstandendum alkóhólista og fíkla. Hún lýsir sér helst í því að hegðun og líðan annarra fer að stjórna hegðun og líðan manns sjálfs . Meðvirkni má þó finna víðar en í samskiptum við áfengis- og vímuefnasjúklinga. Hún getur þróast í ýmis konar samskiptum og mismunandi aðstæðum“.

 

Áfengi var orðið nauðsyn... (Reynslusaga alkóhólista)

"Ég var að deyja inní mér, áfengið var hætt að virka og réttum 5 árum var ég komin í allgjört þrot með líf mitt , en allt breyttist þegar ég fór á minn fyrsta AA fund og kynntist lausninni" Hér heyrum við reynslusögu alkóhólista sem var föst í heimi neyslunnar , hvernig þetta var , hvað gerðist og hvernig líf hennar er í dag. - Það er til lausn!!!

 

Viltu breytingar ?

Stendur þú á tímamótum eða viltu breytingar? Þegar við erum að fara í gegnum þroskakreppur í lífinu, breytingar sem gætu við fyrstu sýn virst erfiðar og jafnvel óyfirstíganlegar, er gott að staldra við og skoða líf sitt. Hvað hef ég lært, hver er reynsla mín fram að þessu og hvað get ég gert öðruvísi í framtíðinni? Mikilvægustu breytingar sem margir gera eru í kjölfar áfalla – og þrátt fyrir að sjá það ekki á sínum tíma, þá áttar maður sig oft á því að þú stóðst þá uppi sterkari vegna þess að þú þurftir þá oft að spyrja þig ýmissa spurninga varðandi líf þitt.

 

Við erum einstök - þáttur 2.

Við erum einstök er þáttur hér á hlaðvarpinu í umsjón Ingibjargar R. Þengilsdòttur andlegs ráðgjafa. Í þessum öðrum þætti hennar sem hún kallar „Hver er ég ?“ segir hún okkur söguna sína. "Eitt það stórkostlega við mannlífið er hversu fjölhæf, mismunandi og ólík við erum, allir eiga sitt eitthvað og öll höfum við okkar sögu. já!! haltu áfram að vera þú sjálf/ur og gefðu þér tækifæri til að blómsta í því hlutverki einu og mundu að við erum öll einstök“

 

Ljós í myrkri - spjallþáttur.

Ljós í myrkri er nýr spjallþáttur um fólk og allskonar málefni og er hér rætt m.a. við einstaklinga sem að hafa verið myrkrinu en fundið með hjálp leiðina aftur inní ljósið og lifa í dag góðu og hamingjuríku lífi. Í þessum þáttum fáum við m.a.. til okkar fólk úr samfélaginu í spjall sem segir okkur hvernig þeirra var, hvað gerðist og hvernig líf þeirra er í dag.

 

Kærleikur í verki.

Öll þurfum við á því að halda að tilheyra öðrum, finnast við skipta máli og séum elskuverð. Þar sem um grundvallarþörf er um að ræða reynum við oft að uppfylla hana með því að fá aðra til að samþykkja okkur á sama tíma og við erum dauðhrædd um að við séum ekki ,,nóg“ og okkur verði hafnað.

 

Heildarsýn - þáttur 1.

Heildarsýn er nýr forvarna,- og fræðsluþáttur þar sem félagsráðgjafinn Sveinn Ingi Bjarnason leiðir okkur inn í hin ýmsu málefni sem margir eru að fást við í sínu daglega lífi. „í þessum fyrsta þætti fjallar hann um àhættuþætti sem auka líkur á að unglingur byrji í neyslu á vímuefnumog verndandi þætti sem hindra að unglingur hefji neyslu“.

 

Höfnun.

Hvað gerir það að verkum að við upplifum höfnun? Hvað veldur því að við finnum til höfnunar, jafnvel oft sama daginn. Við upplifum gjarnan þessa sterku tilfinningu þegar einhver segir eitthvað við okkur sem okkur líkar ekki. Það er eins og það sé takki í huganum sem við getum kveikt og slökkt á, bara svona eftir því hvort okkur líkar eða líkar ekki það sem sagt er við okkur .

 

Að takast á við sjálfan sig.

þegar við stöndum frammi fyrir áskorunum stöndum við gjarnan frammi fyrir því að þurfa að stíga inn í óttann og skrefið í átt að sjálfum okkur. Það er ekki auðvelt að viðurkenna fyrir sjálfum sér og öðrum hver maður er. En í því felst engu að síður mikið frelsi - frelsið til að geta verið maður sjálfur.

 

Mótlæti.

Tilgangur lífsins er ekki fólginn í hlutum, athöfnum eða velgengni. Hann er fólginn í manneskjunni sjálfri og viðhorfi hennar til lífsins. Við áföll og mótlæti opnast gluggi breytinga í lífi okkar því að þau knýja okkur út af beinu brautinni. Þau geta vakið okkur til vitundar um það sem skiptir raunverulega máli.  - Orðið til þess að breyta lífssýn okkar, gildismati og forgangsröðun í lífinu.

 

Ert þú einmana ?

Er ég einmana þegar ég er ein/nn eða kannski bara þegar ég er í kringum fullt af fólki sem ég finn mig ekki með ? Það skiptir máli fyrir andlega og líkamlega heilsu að vera í góðum og uppbyggilegum tengslum við aðra en upplifun okkar fer líka mikið eftir því hvernig okkur líður sjálfum.

 

Hvað get ég gert ...

Hæfileikar þínir eru þessir áþreifanlegu og óáþreifanlegu kostir sem þú býrð yfir.  Leyndadómurinn er að að vita hver þú ert. Bera kennsl á hæfileika þína, uppgötva sannleika þinn, skilja hversu verðmætur þú ert, auka samúð og vita hvað það er sem skiptir þig máli. Allt þetta er hluti af því hver þú ert. Stórkostlegur einstaklingur, með hæfileika, visku og kærleika. Með hæfileika til að sýna og framkvæma það sem þig langar í fyrir þig og umhverfið í kringum þig.

 

Sjálfsmeiðing og sjálfsvíg.

Sjálfsmeiðing og sjálfsvíg á sér oft undanfara í löngu og flóknu ferli, þar sem lokapunkturinn er að einstaklingur grípur til þess að meiða sjálfan sig og eða jafnvel taka líf sitt útaf af einhverjum ástæðum. Í þetta ferli spila oft félagslegar aðstæður sem hafa orðið viðkomandi andsnúnar, skyndileg áföll, missir eða langvarandi streita. persónuleikaþættir spila inn í sem kunna að einkennast af reiði og hvatvísi, óhófleg áfengis- og vímuefnaneysla og síðast en ekki síst, þunglyndi og/eða mikill kvíði.

 

Meðvirkni.

Meðvirkni er sjúkleiki sem tærir upp sál okkar. Háttarlag þar sem manneskja stjórnar eða tekur ábyrgð á gjörðum annarra og hjálpar viðkomandi að forðast það að takast á við vandamálið á beinan hátt.  Leiðin út úr meðvirkni er lífstíðarverkefni og ekki eins hjá neinum. Lífið er vinna, og því meira sem við leggjum í þá vinnu má vænta betri uppskeru.

 

Kærleikur.

Kærleikur hefur verið skilgreindur sem hvert góðverk sem við vinnum, brosið sem við sendum öðrum, faðmlög sem við gefum þeim sem búa við sorg. Að mínum dómi er mikilvægasta skilgreining á kærleika umhyggja okkar fyrir öðrum.

 

Reynslusaga alkóhólista.

Hér heyrum við reynslusögu alkóhólista sem var fastur í heimi neyslunnar , hvernig þetta var , hvað gerðist og hvernig líf hans er í dag.

 

Nýr dagur.

Hvert skipti sem við vöknum, höfum við möguleika á að gera daginn í dag að besta degi lífs okkar. Við eigum valkost í að gera þetta að góðum degi.  Við verðum að nota frjálsa viljann okkar og velja að gera þetta að besta degi lífs okkar

 

Hrós.

Hrós getur gert kraftaverk, við eigum að vera dugleg að hrósa hvert öðru og ekki vera feimin við það. Hvert hrós sem þú gefur veitir ómælda ánægju hvatningu og viðurkenningu. Gott hrós segir líka mikið um þann sem gefur hrósið ef það kemur frá hjartanu

 

Bætt hugsun til betra lífs. - IV

Bætt hugsun til betra líf" er podcast þáttur þar sem hann Bjarni Steinar Kárason einkaþjálfari og markþjálfi tekur fyrir ýmsar hliðar sem koma að forvörnum hugans og hvernig hægt er að temja hugann í átt til betra lífs. “Í þessum fjórða þætti fjallar hann um mikilvægi þess að þú þekkir sjálfan þig og kraftinn sem býr innra með þér”.

 

Áráttukennd kaup.

Áráttukennd kaup (e. compulsive buying) einkennast af óhóflegum, óviðráðanlegum, tímafrekum og endurteknum verlsunarferðum eða kaupum. Þessi áráttukenndu kaup hafa slæmar afleiðingar eins og fjárhagslega- og félagslega erfiðleika og telja sumir að þau séu í raun viðbrögð við depurð eða öðrum erfiðum tilfinningum eða atburðum.

 

Ég fann lausnina í 12 sporunum (Reynslusaga).

"Mér bauðst að vera leiddur í gegnum 12 sporin. Ég ákvað að segja “já takk” sem voru mín mestu gæfuspor, ég hafði sko engu að tapa því innst inni langaði mig til að lifa, svo ég fór að taka leiðsögn og vinna sporin". - Tólf spora vinna hefur bætt líf margra og orðið þeim andleg vakning. Í gegnum tólf spora vinnu nær fólk bata, eignast von, kynnist hamingju og einmanaleikinn hverfur

 

12 sporin björguðu mínu lífi (reynslusaga).

"Þar sem áður ríkti myrkur og vonleysi, lýsir nú ljós gleðinnar og vonarinnar. Þar sem áður ríkti sorg, er nú gleði. Nú lifi ég ekki lengur í vonbrigðum gærdagsins með von um að morgundagurinn verði betri. Nú lifi ég aðeins í dag - Ég er”. - Tólf spora vinna hefur bætt líf margra og orðið þeim andleg vakning. Í gegnum tólf spora vinnu nær fólk bata, eignast von, hamingju og einmanaleikinn hverfur. Allt er þetta reynsla sem þú vilt ekki verða af.

 

12 sporin “Upplifunarsporin 10-12”.

12 sporin og sporavinna er andlegt ferðalag og um leið heiðarleika- og framkvæmdarprógram. En sporunum 12 hefur oft verið skipt niður í þríþætt viðfangsefni sem er hér í þessum þáttum ýtarlega farið í gegnum. Í þessum 3. Þætti munum við fræðast um næstu 3, spor þau 10. – 11. og 12. sem hafa verið kölluð „Upplifunarsporin“ (Lífsins notið með því að viðhalda árangrinum).

 

12 sporin “Hreinsunarsporin 4-9”.

12 sporin og sporavinna er andlegt ferðalag og um leið heiðarleika- og framkvæmdarprógram. En sporunum 12 hefur oft verið skipt niður í þríþætt viðfangsefni sem verður hér ýtarlega farið í gegnum. Í þessum 2. Þætti munum við fræðast um næstu 6 spor þau 4. – 5. – 6. – 7. – 8. og 9. sem hafa verið kölluð „Hreinsunarsporin“ (Leiðrétting sjálfsins og misgjörðanna).

 

12 sporin ”Uppgjafarsporin 1-3”

12 sporin og sporavinna er andlegt ferðalag og um leið heiðarleika- og framkvæmdarprógram. En sporunum 12 hefur oft verið skipt niður í þríþætt viðfangsefni sem verður ýtarlega farið í gegnum í komandi þáttum og í þessum fyrsta þætti byrjum við á fyrstu þremur sporunum 1.- 2. Og 3. spor en þau hafa verið kölluð „Uppgjafarsporin“ (Afneitun hætt).

 

Vinátta.

Sönn vinátta er eins og góð heilsa. Gildi hennar getum við sjaldan metið fyrr en við höfum glatað henni.

 

Lífið er val. (reynslusaga)

Lífið snýst um val. Þetta er þitt líf svo vandaðu val þitt og hafðu einlægni og heiðarleika að leiðarljósi og umfram allt veldu hamingjuna.

 

Markmiðin þín.

Markmið eru eldsneytið í ofni afrekanna“ en manneskja án markmiða er eins og skip án stýris, sem siglir stefnulaust í sífelldri hættu um skipbrot. Manneskja með markmið er eins og skip sem stjórnað er af skipstjóra. Þeir sem læra að setja sér markmið og vinna eftir þeim geta afkastað meiru á einu til tveimur árum en margir gera á heilli ævi.

 

Að öðlast hamingju.

Markmið flestra í lífinu er að öðlast sanna hamingju, það sem heldur aftur af okkur og kemur í veg fyrir að við látum drauma okkar rætast er í langflestum tilfellum við sjálf.

 

Dagurinn í dag.

Dagurinn í dag er dagurinn þinn.

 

Hamingja.

Hamingja er ferðalag ekki áfangastaður , hamingjan finnst ekki í veraldlegum eignum. Það eru hlutirnir sem við sjáum ekki sem reynast okkur best og færa okkur mestu hamingjuna.

 

Ertu endalaust að fresta lífinu.

Lífið þitt líður hjá, á meðan þú finnur þér stöðugt afsakanir, engin veit sína ævi, svo það er rétt að njóta hverrar stundar með þeim sem skipta þig máli, núna strax.

 

Viðhorf.

Hvað eru viðhorf ? Viðhorf tengja hugmynd okkar og tilfinningu. Þau standa fyrir það sem við trúum mjög sterkt á. Því sterkari sem sannfæring okkar er, því sterkari eru viðhorf okkar.

 

Spilafíkn er lífshættulegur sjúkdómur.

Á svipaðan hátt og fólk verður háð áfengi eða fíkniefnum verða spilafíklar haldnir óstjórnlegri löngun til að leggja undir fé í ýmis konar fjárhættuspilum.Spilafíkn er ekki einungis slæmur ávani, heldur mjög erfiður og skæður sjúkdómur.

 

Að halda sig frá fyrsta glasinu.

Eitt glas er of mikið og tuttugu of lítið , oft reynir alkóhólistinn að stjórna drykkjunni og takmarka drykkina, en kemst alltaf að sömu niðurstöðu að Í stað þess að reyna að reikna út, hve mörg glös hann þolir – fjögur ? – sex ?  tólf ? – þarf hann að hafa hugfast, ,,Drekktu bara EKKI fyrsta glasið”

.

 

Netið.

Það er auðvelt að nota netið til að særa annað fólk.  Ljót skrif eða myndbirtingar af öðrum eru ofbeldi gagnvart öðrum og geta valdið mikilli vanlíðan.  Þær valda vanlíðan hjá þeim sem verður fyrir því og þær valda líka vanlíðan hjá þeim sem setur slíkt á Netið. Komum fram við aðra eins og við viljum láta koma fram við okkur líka á netinu.

 

Skortur af sjálfstrausti.

Sjálfstraust er það traust sem við berum til okkar sjálfra til að leysa það vel af hendi sem fyrir liggur.  Traustið byggist á því áliti sem við höfum á okkur sjálfum sem manneskjum.  Öll höfum við okkar veiku bletti og lendum í aðstæðum þar sem við erum ekki öryggið uppmálað en þegar skortur á sjálfstrausti er farið að hamla okkur í lífinu þurfum við að bregðast við.

 

Allt í réttri röð.

Í þessum þætti er farið yfir þetta merka orðtak sem hefur sérstaka þýðingu fyrir alkóhólista og hversu mikilvægt það er að forgangsraða hlutum í lífinu. Þeir  verða að muna öllu öðru fremur að drekka ekki er fyrsta boðorðið , hvar sem er, hvenær sem er og undir öllum kringumstæðum.

 

Að vera hamingjusamur.

Hamingja er val,  þú getur valið hamingju burt séð frá því hvað er að gerast hjá þér í lífinu... Veldu að vera í því hugarástandi að gleðjast og vera hamingjusamur/söm. 

 

Sjálfstraust.

Sjálfstraust er trúin á það að geta gert ákveðna hluti, eftir því sem trúin er sterkari því meira er sjálfstraustið.

 

Brjóttu upp vanann.

Vanamynstur eru sterk og ekki átakalaust að hætta sérstakalega ef þau eru ávanabindandi. Ef þú ætlar að hætta til frambúðar verðurðu að breyta viðhorfum þínum, hugsunum og vanamynstrum. þú heldur kannski að vaninn ráði ekki neinu í þínu lífi en hann er sterkt afl sem verður að taka til endurskoðunar þegar breytt er um lífstíl. 

 

Við erum einstök - þáttur 1

"Við erum einstök" er nýr þáttur hér á podcastinu í umsjón Ingibjargar Þengilsdòttir sem er andlegur ráðgjafi. Í fyrsta þættinum  segir hún okkur uppbyggilega sögu frá ferđalagi sìnu frá heimi vonbrigđa ì heim gleđinnar

 

Að hafa trú á sjálfum þér.

"Ef þú tekur ákvörðun um að hafa trú á sjálfum þér og hegðar þér þannig að allt sé mögulegt, þá munt þú gera þá hluti sem eru nauðsynlegir til að ná þeim árangri".

 

Bætt hugsun til betra lífs - III.

"Bætt hugsun til betra líf" er nýr þáttur þar sem hann Bjarni Steinar Kárason einkaþjálfari og markþjálfi fer með okkur í ferðalag hugans þar sem hann tekur fyrir ýmsar hliðar sem koma að forvörnum hugans og hvernig hægt er að temja hugann í átt til betra lífs. Í þessum þriðja þætti fjallar hann um meðvitaða slökun, miklvægi hennar og leiðir okkur í slökunaræfingu.

 

Bætt hugsun til betra lífs. - II

„Bætt hugsun til betra lífs“ er nýr þáttur þar sem tekið er á ýmsum hliðum hugans er varðar forvarnir hugans og hvernig hægt er að temja hugann í átt til betra lífs. „Í þessum öðrum þætti er fjallað um lífsaflið sem býr að baki hverri aðgerð, bæði huglæg og líkamleg“.  Þáttarstjórnandi er Bjarni Steinar Kárason einkaþjálfari og markþjálfi

 

Bætt hugsun til betra lífs. - I

„Bætt hugsun til betra lífs“ er nýr þáttur þar sem tekið er á ýmsum hliðum hugans er varðar forvarnir hugans og hvernig hægt er að temja hugann í átt til betra lífs , Í þessum fyrsta þætti er fjallað um hvernig þú getur bætt árangur þinn með breyttri hugsun, sama hver markmið þín eru.  Þáttarstjórnandi er Bjarni Steinar Kárason einkaþjálfari og markþjálfi

 

Áhrifavaldar.

Það er margt sem hefur áhrif á okkur í lífínu . m.a. hópþrýstingur o.fl. og í þessum þætti er fjallað um áhrifavalda , hvernig þeir birtast , hvað stjórnar okkur og hvernig við getum verið á verði fyrir þeim.   

 

Fyrirmyndir.

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft segir máltækið “í þessum þætti er fjallað um fyrirmyndir. Fyrirmyndir hafa mikil áhrif á líf okkar allra og Það er tilhneiging mannsins að horfa á náungann og beina sjónum að þeim sem skara fram úr. Fyrirmyndir geta bæði verið góðar og slæmar og oft er fín lína þar á milli.

 

Börn Alkóhólista

Rannsóknir sýna að þýðingarmestu utanaðkomandi áhrif fyrir sérhvert barn séu tilfinningatengsl milli barna og foreldra. en sum börn eru þvímiður ekki svo heppin að fá slík tengsl, í þessum þætti er fjallað um rannsókn R. Margretar Cork um börn alkóhólista sem hún skrifaði um í bókinni “Börn alkóhólista, hin gleymdu börn”,.

 

Þitt líf þinn valkostur.

Viðbrögð okkar við atburðum sem eru að gerast í kringum okkur, móta oft líf okkar. En hvernig getum við breytt þessu okkur í hag. Hér eru einföld skref, sem geta hjálpað þér af stað í að gera líf þitt hamingjuríkt og fullnægjandi, lífi sem gaman er að lifa.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 3

Reynslusaga fra vin í bata - Í þessum hlaðvarpsþætti heyrum við reynslu konu sem var föst í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hún lausn og lifir í dag hamingjusöm , glöð og frjáls.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 2

“Reynslusaga fra vin í bata” - Í þessum hlaðvarpsþætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.

 

Frelsi frá fíkn - þáttur 1

“Reynslusaga fra Vin í bata” - Í þessum hlaðvarpsþætti heyrum við reynslu manns sem var fastur í fjötra fíknar í mörg ár en með góðri hjálp fann hann lausn og lifir í dag hamingjusamur , glaður og frjáls.

 

Hvað er meðvirkni?

"Meðvirkni er sjúkleiki sem tærir upp sál okkar. Háttarlag þar sem manneskja stjórnar eða tekur ábyrgð á gjörðum annarra og hjálpar viðkomandi að forðast það að takast á við vandamálið á beinan hátt, gert til að viðhalda stöðugleika í samskiptum fjölskyldunnar.

 

Að sigrast á fíkn.

“Fíkn er flókin og erfitt getur verið að skilgreina hana. Þó er almennt talað um tvær tegundir fíknar; það er líkamleg og andleg fíkn. Við fíkn eru til margs konar meðferðir og fjöldi einstaklinga hefur unnið sig úr fíkn".

 

Alvöru vinátta (reynslusaga)

Allir þurfa að eiga vini , til þess að hjálpa þeim í gegnum erfiðar aðstæður , vera tilstaðar og vera stuðningur í erfiðum aðstæðum , hér heyrum við reynslusögu um hvað allvöru vináttu getur skipt miklu máli í lífi allra.

 

Reynslusaga um kvíða

 

Reynslusaga um átröskun

 

Drykkja, þunglyndi, sjálfsvíg (reynslusaga)

 

Reynslusaga spilafíkils

 

Fyrirgefning

"Fyrirgefning er ákveðin leið til að sleppa. Samt eru svo margir sem líta á að fyrirgefning sé það sama og að gefa eftir, að láta eitthvað viðgangast eða sem veikleikamerki. Með því að fyrirgefa ekki, erum við í raun að skaða okkur sjálf meira en upphaflegi skaðinn var. Þegar við fyrirgefum, þá sleppum við sársaukanum ásamt refsingunni og við erum frjáls".

 

Einelti

"Einelti er niðurlægjandi áreitni eða ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, sem stýrt er af einstaklingi eða hópi og beinist að einstaklingi sem ekki tekst að verja sig".

 

Bætt sjálfstraust

"Öll langar okkur að hafa gott sjálfstraust og vera örugg með okkur. Það greiðir leið okkar að markmiðum okkar og hjálpar okkur að vera sátt við sjálf okkur og lífið".

 

Heilbrigt Líf - þáttur 1

Heilbrigt líf er podcast þáttur þar sem tekið er á ýmsum málefnum sem margir eru að glíma við í daglegu lífi. Í fyrsta þættinum er m.a. talað um „Líkamsímynd og anorexíu“ - þáttarstjórnandi er Dagný Pálsdóttir

 

Heilbrigt Líf - Þáttur 2

Heilbrigt líf er podcast þáttur þar sem tekið er á ýmsum málefnum sem margir eru að glíma við í daglegu lífi. Í þessum þætti ræðir Dagný m.a. um hjarta, sál , líkama og huga eða eins og hún kallar það “hin fjögur kraftaverk”, - þáttarstjórnandi er Dagný Pálsdóttir

 

Að koma í veg fyrir fall.

Alkóhólismi er lífshættulegur sjúkdómur sem margir glíma við, í þessum þætti fjöllum við um hvernig hægt er að berjast á móti því að falla , bendum á hjálpartækin og bendum á leiðir sem hægt er að gera þegar einstaklingur finnur sig knúin að fara að nota aftur. - Það er til lausn!!!