Ársskýrsla 2021

Verkefnið okkar fór vel af stað á árinu 2021 og var kraftur í okkur og horfðum við fram á að covid myndi vera búið og allt yrði í blóma en í enda árs kom nú annað í ljós.  Fyrsta Verkefni ársins í Tónasmiðjunni var „Í gegnum tíðina“ tónleikasýning þar sem við ákváðum að við ætluðum að styrkja Húsavíkurkirkju , en flestar okkar sýningar hafa verið haldnar þar og alltaf gott að spila þar , en kirkjan okkar þarfnast viðhalds og var ráðist í það styrkja hana með ágóða af þessum tónleikum. Um 35 manns, hópur á ýmsum aldri tók þátt ásamt heiðursgestunum þeim Hrafnhildi Ýr Víglundsdóttur sem var okkar veislustjóri,  Jens Hanssyni saxafónleikara og Stefáni Jakobssyni söngvara.  Þessir tónleikar voru virkilega góðir , var fín mæting og gátum við styrkt kirkjuna um 235 þúsund krónur.

Sumarið kom og áfram var haldið og við byrjuðum að undirbúa okkur fyrir næstu sýningu og verkefni því tengt , hent var í bolasölu í tengslum við verkefnið og fór verkefnið „Aðeins eitt líf“ af stað til styrktar Píeta samtökunum á Akureyri. Haft var samband við Birgi Örn Steinarsson forstöðumann þar og var hann afar glaður að við værum í þessu verkefni í tengslum við 10. september sem er alþjóðlegur sjálfsvígs forvarnadagur og er þetta fjórða árið sem föruim í verkefni tengt þeim degi. Um 30 manns tóku þátt í þessari sýningu þar á meðal heiðursgestirnir Bjössi sax og Ragnheiður Gröndal og var ákveðið að fá hann Birgi Örn til þess að koma að þessu með okkur og sjá um veislustjórn og syngja með okkur, sem hann gerði og þessir tónleikar og verkefnið gekk vel, full kirkja og styrktum við Píeta um 500 þúsund krónur. (stærsta verkefni okkar til þessa) en þetta var bæði ágóði af tónleikunum og bolasölunni. 

Auk þess að vera að æfa og undirbúa þessa sýningu sumarið ´21 spiluðum við á mærudögum, þar sem flottur hópur frá okkur kom fram á stóra sviðinu bæði um daginn og svo um kvöldið og fékk mikið hrós fyrir. 

Eftir sumarið var ráðist í næsta verkefni sem var jólasýningin okkar “Jólin þín og mín” sem var núna haldin í þriðja skiptið , hópurinn stækkaði töluvert og núna vorum saman komin um 40 flytjendur á ýmsum aldri , fjölbreyttur hópur krakkar og eldri reynsluboltar. Æft var stíft , og var mikill undirbúningur, enda krefjandi verkefni og stefnan að halda glæsilega sýningu sem fyrr. Heiðursgestir að þessu sinni voru Hrafnhildur Ýr og Rúnar Eff frá Akureyri. Þegar við sáum fram á að covid myndi hafa aðeins áhrif og ýta aðeins frá var tekin ákvörðun að taka sýninguna upp og sýna yfir jólin en við settum upptökuna inn á fb síðu okkar og höfðum þar frá 22. Des til 28. Des. Þetta verkefni var afar skemmtilegt og um leiđ krefjandi ferđalag, sem náði hápunkti sínum með þessari góðu stund, Hòpurinn okkar stòđ sig frábærlega. Við styrktum að þessu sinni Velferđarsjòđ Þingeyinga um 200 þús kr.

Við erum afar stolt af að vera að stýra Tònasmiđjunni núna fimmta árið á Húsavík og hefur starf okkar stöðugt verið að stækka,  þar sem við komum saman einstaklingum á öllum aldri, gerum eitthvađ lifandi og skemmtilegt saman međ jákvætt forvarnargildi og gefum af okkur þannig til samfélagsins og til góðra málefna. 

Núna í desember styrktum við auk þess þrjá einstaklinga og fjölskyldur þeirra úr okkar samfélagi Norðurþingi um 70 þús kr hvert. Einstaklinga sem hafa verið að glíma við alvarleg veikindi. Einnig gáfum við jólagjafir til heldra fólksins okkar í Hvammi og Skógarbrekku eins og við höfum gert undanfarin 3 ár.       

Heimasíðan og hlaðvarpstöðin gengu vel á þessu ári og um tíma vorum við að gefa út fimm þætti á viku og hlustunin frá upphafi hefur alltaf verið góð.  Greinilegt að fólk er að lesa og hlusta vel og gott að fólk er að nýta sér þessi verkfæri.

Viđ erum núna þegar byrjuđ ađ leggja drög ađ næsta verkefni sem byrjar núna ì Janùar n.k.

Um leið og við óskum ykkur öllum velfarnaðar á nýju ári 2022 viljum við þakka öllum þeim sem hafa sýnt okkur áhuga , hvatt okkur áfram, styrkt okkur og/eða rétt okkur hjálparhönd með einum eða öðrum hætti.  Án ykkar væri þetta ekki hægt.

TAKK fyrir okkur!!!