Úr sársauka í styrk

Þú skiptir máli. Þín líðan skiptir máli.

Hjá Von og Líf bjóðum við einstaklingum 18 ára og eldri persónulega ráðgjöf og stuðning í gegnum Zoom. Við leggjum áherslu á sjálfsmynd, sjálfsvirðingu og innri uppbyggingu og hjálpum fólki að finna aftur trúna á eigin getu.

Hvernig getum við hjálpað þér?

Úr sársauka í styrk

16 vikna uppbyggingarúrræði fyrir einstaklinga 18 ára og eldri sem hafa orðið fyrir einelti. Við vinnum með sjálfsmynd, sjálfsvirðingu, tilfinningar og innri styrk. Markmiðið er að hjálpa einstaklingnum að vinna úr afleiðingum eineltis og byggja upp trú á eigin getu.

Persónuleg ráðgjöf

Hjá Von og Líf bjóðum við einstaklingum 18 ára og eldri persónulega ráðgjöf og stuðning í gegnum Zoom.

Við leggjum áherslu á hlýju, traust og virðingu þar sem hver einstaklingur fær tækifæri til að vinna með sína líðan, sjálfsmynd og innri styrk.

Fræðsla og myndbönd

Hjá Von og Líf leggjum við mikla áherslu á fræðslu og forvarnir. Í myndböndum okkar fjöllum við meðal annars um einelti, fíkn, sjálfsmynd, sjálfsvirðingu og innri uppbyggingu. Með fræðslu, persónulegri reynslu og hvatningu viljum við vekja von og hjálpa fólki að finna styrk til breytinga.

Hver erum við?

Við erum Elvar Bragason og Þóra Ingibjörg Sigurjónsdóttir og stöndum saman að Von og Líf.

Markmið okkar er að veita einstaklingum 18 ára og eldri persónulega ráðgjöf, stuðning og hvatningu til innri uppbyggingar.

Við leggjum áherslu á hlýju, traust og virðingu og trúum því að allir eigi möguleika á að byggja upp sterkari sjálfsmynd, aukna sjálfsvirðingu og betri líðan.

Þú skiptir máli – og þín líðan skiptir máli.