Forvarnir hefjast heima IV

Talaðu við barnið þitt um skaðsemi áfengis og fíkniefna

Hér koma nokkur dæmi sem hægt er að tala um:

Útskýrðu hvernig neyslan skaðar fólk . líkamlega með því að seinka þroska , skerða dómgreind og hæfni til að verjast hættum.  Tilfinningarlega með því að einangrast frá vinum og ættingjum , finna síður fyrir gleði og getur leitt til kvíða og árásartilfinningar.

Minni námshæfni kemur m.a. fram í minnistapi og athyglisbresti..

Talaðu um frítímann og hvernig er hægt að nota hann á jákvæðan hátt t.d. með því að spila , fara í leiki, sækja tónlistarviðburði, stunda íþróttir , lesa áhugavert efni og hjóla.

Gott er að ræða þessi atriði einnig við vini barnsins. Talaðu rólega og opið um skaðsemi áfengis og fíkniefna, ekki ýkja.

Leitaðu aðstoðar ef grunsemdir vakna, það er styrkur , ekki veikleiki.

Previous
Previous

Þù ert einstök persòna

Next
Next

Forvarnir hefjast heima III